Yfirvöld í Noregi hafa í öryggisskyni ákveðið að birta ekki lista yfir þá erlendu ráðamenn sem viðstaddir verða útför Haraldar V konungs á miðvikudaginn kemur.
Nettavisen hefur eftir utanríkisráðuneytinu að öllum löndum sem eiga sendifulltrúa í Noregi sé boðið að senda gest til athafnarinnar og að það sé hverju þeirra í sjálfvald sett að upplýsa hvaða ráðamenn verði viðstaddir.
Boðið nær einnig til ríkja innan Atlantshafsbandalagsins, EES og Evrópusambandsins þótt þau eigi ekki sendimenn í Noregi, að sögn Cecilie Skjennald, fjölmiðlafulltrúa ráðuneytisins.
Hún segir viðbúið að mikill fjöldi þjóðarleiðtoga verði í landinu um miðja næstu viku. Hins vegar nái boðið aðeins til sendifulltrúa Rússlands, Súdan, Mjanmar og Afganistan en ekki sjálfra leiðtoga ríkjanna.
Jafnframt ákveður hirðin sjálf hverjum öðrum verði boðið að jarðarförinni. Skjennald áréttar þó að takmarkaður sætafjöldi sé í dómkirkjunni í Osló þaðan sem útför Haraldar verður gerð klukkan 13 að norskum tíma miðvikudaginn 9. september.
Nettavisen hafði eftir sérfræðingum í bandarískum málefnum á mánudag að þeim kæmi ekki á óvart að Donald Trump forseti ákveddi að mæta þótt nokkrir teldu líklegra að varaforsetinn JD Vance verði viðstaddur útförina.
Haraldur Noregskonungur V lést að morgni 28. ágúst og þá tók Hákon sonur hans við krúnunni.
Kista konungs liggur í kapellu konungshallarinnar þar sem almenningur getur vottað honum virðingu sína allt til þriðjudagskvölds 8. september. Að athöfninni lokinni verður kista Haraldar flutt í konunglega grafhýsið Akerhus-virki þar sem hann verður lagður við hlið föður síns og afa.