Magnús Geir Þórðarson er sá eini sem hefur stjórnað í öllum þremur atvinnuleikhúsum landsmanna, en hann hefur verið Þjóðleikhússtjóri frá árinu 2020.
Nú er leikárið að hefjast í leikhúsum á Íslandi og af því tilefni settist Magnús Geir niður með Andra Frey Hilmarssyni í þættinum Með okkar augum á RÚV, þar sem hann sagði frá leikhúsbakteríunni sem hefur fylgt honum frá barnsaldri.
Um lífið í Þjóðleikhúsinu segir Magnús Geir:
Það er stórkostlegt og ævintýri líkast. Ég hugsa það eiginlega á hverjum einasta degi sem ég mæti í vinnuna og geng að Þjóðleikhúsinu: ,,Mikið er ég heppinn að fá að taka þátt í þessu."
Hann heillaðist snemma af leikhúsinu, fann fjölina ungur og ætíð síðan.
Ég var dæmigert leikhúsbarn og það eru mörg börn á Íslandi sem eru með leikhúsbakteríu, elska leikhús og dragast að því. Ég var eitt af þessum börnum, hálfgert leikhúsnörd. Pínulítill var ég byrjaður að heillast af þessari leikhúsveröld.
Hann var aðeins níu ára þegar hann knúði fyrst dyra hjá Þjóðleikhúsinu og bað um að fá að leika.
Ég var svo heppinn að hitta gott fólk sem gaf mér tækifæri og alla mína æsku, bæði sem barn og unglingur, hef ég verið að setja upp leiksýningar og búa til leikhús.
Hann segir verkefnavalið vera afar skapandi ferli sem margir komi að ár hvert.
Við erum mörg sem vinnum að því saman að velja þessi verkefni og við erum að skoða mörg hundruð hugmyndir á ári. Við erum að lesa leikrit og hugmyndir og ráða fólk til að skrifa. Á endanum endum við með samsetningu af verkum sem okkur finnst eiga einhvern samhljóm en vera nægilega ólík innbyrðis. Þetta er lífrænt og skrýtið ferli.
Auk þess að stýra leikhúsi er Magnús Geir hamingjusamur fjölskyldumaður. Til samans eiga hann og konan hans, Ingibjörg Ösp, fimm börn.
Þegar hann er spurður hvort hann hafi tíma fyrir hlutverk fjölskylduföðurins segir hann:
Leikhúsið er krefjandi og frekt og á hug minn allan en hins vegar er ég meðvitaður um að það skiptir ekkert máli eins og fjölskyldan og fólkið manns. Ég reyni að passa það og sinna þeim vel og nýt þess. Fólk í kringum mig elskar leikhúsið líka svo þetta fellur ágætlega saman.
Áður en hann tók við hlutverki þjóðleikhússtjóra var Magnús Geir útvarpsstjóri á RÚV. Um árin í Efstaleitinu segir hann:
Ég var á RÚV í nokkur ár og naut þess alveg svakalega. Það var rosalega skemmtilegt að vera boðið inn í þennan heim og ég hefði verið til í að halda áfram. Mér fannst þetta gefandi, skemmtilegt og krefjandi og RÚV er mögnuð menningarstofnun sem hefur áhrif á líf fólks.
En leikhúsið togaði og þar á Magnús Geir heima.
En hins vegar var leikhúsbakterían svo sterk að þegar dyrnar opnuðust að Þjóðleikhúsinu stóðst ég ekki freistinguna og ég vildi endilega fá að stíga hér inn.,,Þegar dyrnar opnuðust að Þjóðleikhúsinu stóðst ég ekki freistinguna," segir Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri og fyrrverandi útvarpsstjóri. Hann segist hafa notið áranna á RÚV en að leikhúsið togi alltaf fastast í hann.