Félag íslenskra atvinnu·flugmanna gerði könnun.
Könnunin var um þreytu hjá flugmönnum Icelandair.
508 flugmenn svöruðu könnuninni. Það er meirihluti flugmanna sem vinna þar.
56 af hverjum 100 flugmönnum sofnuðu óvart í vinnunni.
9 af hverjum 10 flugmönnum sögðu:
Vinnuálagið er of mikið.Vakta·fyrirkomulagið er slæmt.Flugmennirnir verða þess vegna mjög þreyttir.
9 af hverjum 10 flugmönnum sögðu líka:
Þetta er slæmt fyrir flugöryggi.
Flugöryggi er það þegar það er öruggt að fljúga.
Félag íslenskra atvinnu·flugmanna segir:
Niðurstöðurnar sýna að öryggið hjá Icelandair er ekki nógu gott.