Hjónin Svajunas Statkevicius og Jurgita Statkevicius koma frá Litáen en hafa búið á Íslandi í 26 ár. Jurgita er ferðaráðgjafi, skrifstofukona og blómaskreytir. Svajunas er sérfræðilæknir með doktorsgráðu í svæfingum og gjörgæslulækningum. Þau kynntust hér á Íslandi, þykir vænt um æskuslóðirnar í Litáen en líta á Ísland sem sitt ,,heim." Þau voru gestir Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur í þættinum Segðu mér á Rás 1 þar sem þau sögðu frá sínum kynnum og lífinu á Íslandi.
Mamma var ekki hrifin af búferlaflutningum
Svajunas flutti til Íslands árið 1998 og var þá skiptinemi í læknisfræði. Hann féll strax fyrir bæði landi og þjóð.
,,Mér leist mjög vel á Ísland, þjóðfélagið og fólk á spítalanum. Ég hugsaði bara ég fer heim, klára læknisnám og eftir ár kom ég aftur til Íslands sem kandídat," rifjar hann upp.
Hann segir að fjölskyldan í Litáen hafi til að byrja með ekki verið hrifin af áformum hans. ,,Mamma var ekki mjög hrifin. Ég var að klippa af stóran og þykkan naflastreng til að byrja nýtt líf hérna," segir hann glettinn.
Gott að hittast og tala móðurmálið
Jurgita flutti til Íslands tveimur árum síðar, árið 2000. Hún hafði unnið sem au pair í Þýskalandi þar sem hún bjó hjá fjölskyldu og passaði börn. Hana langaði eftir þá reynslu að halda áfram, en gera það á nýjum slóðum. Hún var spennt fyrir Norðurlöndunum og mátaði sig við Svíþjóð og Noreg.
Hún fór á skrifstofu í Vilnius til að sækja um og var tjáð að á Íslandi væri fjölskylda að leita að stúlku á hennar reki. Ísland hafði ekki verið á radar Jurgitu en hún sló til og var í tvö ár hjá gestafjölskyldu á Kjalarnesi sem hún undi sér afar vel hjá.
Vissi ekki hvort hún fengi að koma aftur
Á þeim tíma sem Jurgita var á Kjalarnesi kynntist hún Svajunas hér á Íslandi í gegnum sameiginlega vinkonu.
Við hittumst í kaffi og við fórum í göngutúra saman. Þegar maður kemur og þekkir engan svo það er gaman að hittast stundum og spjalla. Tala okkar tungumál.
Til stóð að Jurgita færi heim eftir ár en þegar það var liðið hafði hún kynnst Svajunas, leið afar vel hér á landi og var orðin náin au pair fjölskyldunni. Hún vissi að hér vildi hún áfram vera.
Ég var bara grátandi yfir að vera að fara heim, ég vissi ekki hvort ég kæmi til baka. Hvort ég fengi atvinnuleyfi.
Anna Lára, gestamóðir Jurgitu, vildi heldur ekki missa hana úr landinu svo hún sótti um starf fyrir hana á leikskóla á Kjalarnesi. En hún þurfti atvinnuleyfi og umsóknarferlið flókið.
Eftir töluverða bið fékk hún grænt ljós og Jurgita sneri fegin aftur til Íslands.
Fluttu til Svíþjóðar með átta mánaða son sinn
Svajunas hafði verið hér í námi þegar hann ákvað að hann vildi verða svæfingalæknir. Það var hins vegar ekki hægt að sérhæfa sig í svæfingum hér á landi svo hjónin fóru til Lundar í Svíþjóð. Þá var Símon sonur þeirra átta mánaða gamall.
Svíar ekki eins ákveðnir í að það sé hægt að redda hlutunum
Það má segja að þau hafi fengið smá kúltúrsjokk yfir því hve frábrugðin Svíþjóð er Íslandi. Til dæmis hafi íslensk hugmyndafræði, um að hlutirnir reddist, ekki verið ofarlega í huga Svíanna. Jurgita segir:
Ég segi oft að Íslendingar eru svo duglegir að vera bara: Já, já þetta reddast, drífum okkur og sjáum hvað gerist. En í Svíþjóð gekk það ekki. Svarið var alltaf: nei þetta mun ekki ganga. Það var mjög erfitt fyrst.
Svajunas kláraði námið í Svíþjóð en þau komu aftur til Íslands enda líkar þeim betur að vera hér.
Í dag má segja að Svajunas sé með annan fótinn í Svíþjóð þar sem hann vinnur við svæfingar, en Ísland er heimaland fjölskyldunnar.
Eins og túristar á föðurlandinu
Þau ferðast stundum til Litáen. Foreldrar Jurgitu eru bæði dáin en foreldrar Svajunas búa þar og eru 85 ára gömul. En þeim líður svolítið eins og túristum í eigin upprunalandi samkvæmt Svajunas.
Við erum frekar túristar þar. Við horfum öðrum augum á landið. Okkar lest er farin, eftir 27 ár er þetta allt annað líf.
En Jurgita lýsir æskunni þar eins og draumi fyrir börn.
Það var stór garður, gróðurhús. Það sem var til í gróðurhúsinu og kartöflur úr garðinum, það var borðað á veturna. Mamma átti hænur. Þetta var bara svona. Við áttum ekki bíl en það var mikið hjólað og gengið í skólann. Barnæskan, þetta var geggjað.
Börnin þroskast á ferðalagi
Hjónin ferðast afar mikið og hafa tekið börn sín á flakk. Þau segja að börnin þroskist á því að kynnast heiminum.
Einn sá áfangastaður sem þau féllu enda mest fyrir er Krít. Þangað fóru þau fyrst í páskafrí og segjast hafa strax orðið hrifin.
Við völdum Krít fyrir páskafrí og fórum og leist svo vel á. Við komum og bara þetta fólk, landið, gestrisnin, matargæðin. Allt. Fólk, þetta er svolítið eins og Íslendingar svona eyjufólk.
,,Ef það væru ekki konur myndum við búa í helli"
Áður en varði var Jurgita byrjuð að skoða fasteignir á Krít. Um þá hugmynd segir Svajunas brosandi:
Þið vitið að ef það væru ekki konur í mannsins lífi myndum við búa í helli.
Þau höfðu verið að velta fyrir sér að eiga sumarhús í Litáen en segja að þar sé ekki hægt að reiða sig á gott veður. En á Krít hafi Jurgita bent á að þar væri blíða allt sumarið svo þau fóru að skoða hús.
Þau skoðuðu fasteignaauglýsingar og fundu tíu hús sem komu til greina. Hjónin bókuðu fund með fasteignasala sem sýndi þeim húsin.
Faldi sig fyrir sölumanninum og sagði bara: ,,Þetta!"
Fyrstu átta húsin voru vonbrigði og þau urðu vondauf, en þegar kom að níunda húsinu segist Jurgita hafa hugsað: Bingó.
Hún sagði Svajunas að þetta væri rétta húsið..
Konur sko. Við vorum búin að skoða. Jurgita kemur fyrir hornið þegar sölumaðurinn sér ekki og var bara: ,,Þetta!" Ég var bara: ,,Ha?"
Jurgita gengst við því. Hún lýsir húsinu sem þau féllu fyrir, en í dag hafa þau selt það og keypt enn stærra hús nær miðbænum. Krít er áfram þeirra sumar dvalarstaður.
Húsið er flott, á flottum stað með fallegu útsýni og passlega stórt. Við áttum það í fimm ár og seldum en eigum núna stærra hús nær Chania. Það er garður þar og lítil sundlaug.
Olían góð fyrir heilsuna
Eitt af því sem þau kynntust á ferðum sínum til Krítar er ólífuolían sem er talin allra meina bót. Svajunas segist hafa komist að því hvað hún sé góð fyrir líkamann og hafi bólguminnkandi áhrif. Þau ákváðu að taka sig til og kynna hana fyrir Íslendingum.
Í dag er fjölskyldan að flytja inn ólífuolíu, eru með litla verslun og stúdíó þar sem Jurgita býður upp á olíusmakk fyrir vinahópa, hjón, saumaklúbba og slíkt.
Hér er hægt að kynna sér olíurnar sem hjónin flytja inn.
Jurgita Statkevicius og eiginmaður hennar Svajunas hafa búið á Íslandi í kvartöld. Hann er svæfingalæknir og hún er ferðaráðgjafi og þau tala reiprennandi íslensku. Þau ferðast mikið og eru um þessar mundir að kynna grískar olíur fyrir landsmönnum.