Útlit fyrir sterkasta El Niño í áratugi með miklum öfgum í veðri El Niño-veðurfyrirbærið gæti verið mjög öflugt næstu mánuði og á líklega eftir að hafa áhrif á veður víða um heim alveg fram í febrúar. Alþjóðaveðurfræðistofnunin sagði í dag að fyrirbærið eigi eftir að færast í aukana á næstu mánuðum og hafa mikil áhrif á rigningu og hitastig og þar með hættuna á flóðum, þurrkum og öfgum í hita. Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í dag að El Niño yrði með versta móti. ,,Sjávarhitinn fer hækkandi, hitastig rís og heimurinn stendur frammi fyrir hættunni á öfgum í veðri. Celeste Saulo, yfirmaður Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar, sagði að El Niño gæti orðið öflugri en nokkur dæmi eru um síðan mælingar hófust. Þrír fellibyljir eru í gangi á Kyrrahafi og er fátítt að svo margir fellibyljir gangi yfir á sama tíma. ,,El Niño skapar aðstæðurnar fyrir þessa storma, sem magnast upp af hlýjum sjó," sagði Julia Cole, loftslagsvísindamaður við Háskólann í Michigan, í viðtali við AFP. ,,Þegar Kyrrahafið er hlýrra en venjulega fjölgar sterkum stormum."
03.09.2026 08:57
<< Til baka
|
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C Stykkishólmur: 9,1°C Ísafjörður: 7,9°C Blönduós: 9,7°C Akureyri: 8,5°C Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað Höfn: 9,1°C Selfoss: 10,2°C Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni
DAGSKRÁ
Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá
GAMALT.NET
Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt
|
|