Nýtt og stærra kvennaathvarf var formlega opnað í dag. Framkvæmdastýra segir að þörf fyrir þjónustu hafi verið mikil að undanförnu.
,,Tilfinningin er óraunveruleg eftir allan þennan undirbúning. Þetta er fyrsta athvarfið á Íslandi sem er byggt sem slíkt og allur undirbúningur er með konur og börn í huga og hönnun," segir Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins.
,,En hún er líka ljúfsár. Hún er sár yfir því að við þurfum að auka við þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis á Íslandi. Við myndum vilja vera að skrúfa hana niður því við viljum vinna á þessu bug."
Nýtt og stærra Kvennaathvarf var formlega opnað í dag. Um 500 konur leita til athvarfsins á hverju ári til að fá ráðgjöf og stuðning.
Söfnuðu 600 milljónum
Fjörutíu og fjögur ár eru síðan Kvennaathvarfið var opnað í Reykjavík, ætlað konum og börnum sem ekki geta búið heima hjá sér vegna ofbeldis.
Linda segir starfsemina hafa sprengt utan af sér fyrir nokkru og því hafi verið safnað fyrir byggingu nýs athvarfs.
,,Þetta hafa verið um 600 milljónir sem við höfum náð að safna frá almenningi, með almenningi, fyrirtækjum. Það má heldur ekki gleyma því að margir sem koma hér að, margir sem hafa gefið vinnu, gefið innréttingar, komið þannig að þessu líka. Þannig að mikið af söfnuninni er í vörum, en ekki einungis fjármagni."
Gefur tækifæri á fjölþættari þjónustu
Húsnæðið var formlega opnað í dag en verður ekki tekið í notkun fyrr en síðar í mánuðinum. Meðal gesta voru Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Ragnar Þór Ingólfsson félagsmálaráðherra.
Nýja húsið er helmingi stærra en það gamla, með 15 svefnherbergjum, hvert með eitt til þrjú rúm. Auk fleiri herbergja og meira rýmis segir Linda nýja húsið gefa tækifæri til fjölþættari þjónustu við ólíka hópa.
,,Við getum einnig aukið við viðtalsþjónustuna okkar en það er sú þjónusta sem er að vaxa hvað mest hjá okkur. Það eru um 500 konur á ári sem koma til okkar til að fá ráðgjöf og stuðning og átta sig á því hvort þær séu í ofbeldissambandi. Og þessi þjónusta mun stækka því nú höfum við meira pláss fyrir hana."
Aldrei bið þrátt fyrir mikla þörf
,,Það er búið að vera mjög mikið að gera í Kvennaathvarfinu síðustu mánuði. Við finnum alltaf að þegar við erum sýnilegri þá eykst aðsóknin. Fleiri símtöl og fleiri sem vilja fá ráðgjöf og stuðning," segir Linda og heldur áfram.
,,En það hefur verið mikið að gera og Kvennaathvarfið á Íslandi er einstakt að því leyti að það er aldrei bið, við tökum alltaf á móti konum og börnum. Starfskonurnar eru magnaðar í að finna lausnir ef allt er fullt. Það er aðeins minni tetris í þessu húsi. Við getum látið fara enn betur um okkur hér."