Stjórnvöld í Rússlandi ætla að láta loka Goethe-stofnunum í Moskvu, Pétursborg og Yekaterinburg. Sergei Lavrov utanríkisráðherra segir þetta svar við þeirri ákvörðun stjórnvalda í Þýskalandi að láta loka Húsi rússneskrar menningar í Berlín eftir ásakanir um að Rússar bæru ábyrgð á tilraun til drónaárásar á flugvelli í Leipzig.
,,Auðvitað verður þeim lokað eftir að okkar menningarmiðstöð var lokað þar," sagði Lavrov á efnahagsráðstefnu í Vladivostok.
Utanríkisráðherra Þýskalands, Johan Wadephul, segir Goethe-stofnunina hafa gegnt mikilvægu hlutverki sem menningarbrú sem þýsk stjórnvöld hafi verið reiðubúin að viðhalda. Þá sagði ráðherrann að almennt hafi verið góð samskipti milli fólks í Rússlandi og Þýskalandi. Ráðamenn í Rússlandi hafi verið vandamálið.
Hvað er Goethe-stofnun?
Goethe-stofnanir eru starfræktar í um 100 ríkjum. Þær heita eftir þýska skáldinu Johann Wolfgang van Goethe sem var uppi frá 1749 til 1832. Þar er hægt að læra þýsku og afla sér þekkingar um þýska menningu og samfélag.
Fyrsta slíka stofnunin í Rússlandi var opnuð í Moskvu 1992, stuttu eftir hrun Sovétríkjanna. Stofnanirnar þrjár sem nú á að loka eru meðal síðustu þýsku stofnananna sem enn voru starfræktar í Rússlandi.
Stjórnvöld í Þýskalandi sökuðu stjórnvöld í Rússlandi á þriðjudag um að bera ábyrgð á tilraun til drónaárásar á flugvöll í Leipzig í byrjun ágúst. Þá var tilkynnt að Þjóðverjar ætluðu að herða reglur um komur Rússa til Þýskalands, auka þrýsting á skuggaflota Rússa og fyrirskipa lokun ræðisskrifstofu Rússlands í Bonn.
Rússar hafa hótað að grípa til frekari aðgerða en lokana á Goethe-stofnunum, svo sem að fyrirskipa lokun aðalræðisskrifstofu Þýskalands í Sankti-Pétursborg.