RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUÐSKILIÐ | ENGLISH | POLSKI

Óljóst hvers vegna sumir El Niño eru stærri en aðrir

Útlit er fyrir að veðurfyrirbærið El Niño verði öflugra í ár en nokkru sinni síðan Alþjóðaveðurfræðistofnunin byrjaði að mæla umfang þess fyrir 40 árum.

Stofnunin segir að El Niño færist í aukana á næstu mánuðum og auki hættu á flóðum, þurrkum og hitabylgjum. Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í dag að El Niño yrði með versta móti. Sjávarhiti fari hækkandi, hitastig líka og að heiminum steðji hættulegar öfgar í veðri.

Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands, segir það gerast af og til að El Niño verði mjög öflugur. ,,Síðasti stóri af þessari stærðargráðu var 2015 og þar áður 1998 og svo koma oft minni El Niño-atburðir á milli. Það er í sjálfu sér ekki nein ein hlít skýring. Allavega er ekki vitað hvers vegna sumir verða stærri en aðrir," sagði Halldór í viðtali í hádegisfréttum.

Áhrif El Niño eru veruleg. Halldór segir þá koma tvisvar á áratug og vísindamenn hafi lengi kortlagt áhrifin. Úrkoma verði meiri og nú þegar sé öfgaúrkoma við Kyrrahafsströnd Suður-Ameríku. Þá séu þurrkar í Mið-Ameríku og Indónesíu, þar sem eru skógareldar líka. Í tengslum við El Niño sé alltaf hætta á að monsúntímabilið bregðist á Indlandi. Það hafi ekki gerst núna en það hafi verið minna en vanalega.

Áhrifanna gætir varla hér á landi. Halldór segir þau dvína mjög þegar veðurfyrirbrigðið nái til Evrópu. Þó sé talað um að það sé aðeins kaldara í Evrópu um vetur og vor en að áhrifin séu ekki mikil í álfunni.

03.09.2026 14:46


<< Til baka
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörður: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000137
Talið frá 03.09.2026
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.