RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUÐSKILIÐ | ENGLISH | POLSKI

Heimsglugginn: Árásir Rússa, danskir bændur, bresk og sænsk stjórnmál

Þýsk stjórnvöld hafa opinberlega sakað Rússa um misheppnaða drónaárás á Leipzig-Halle flugvöllinn. Úkraínskt flutningaflugfélag er með aðalstöðvar sínar þar og mikið af hergögnum og aðstoð til Úkraínu fer um flugvöllinn. Rússar segja Þjóðverja hafa komið sönnunargögnum fyrir. Margir hafa lýst drónaárásinni sem hryðjuverki.

Mögulegar mótaðgerðir ræddar

Utanríkisráðherra Evrópusambandsríkja þinguðu á Írlandi á miðvikudag og þar voru svokallaðar fjölþáttaárásir Rússa mjög áberandi. Evrópusamband undirbýr 22. refsipakkann gegn Rússlandi sem á að ná til meira en 1500 fyrirtækja, stofnana og einstaklinga. Fréttaskýrendur hafa bent á að hugsanlega verði gripið til harðari aðgerða gegn skuggaflota Rússa sem þeir nota til að flytja út olíu.

Danskir bændur mótmæla

Danska þingið greiðir í dag atkvæði um lagafrumvarp sem takmarkar áburðarnotkun. Bændur eru æfir yfir breytingunum og hafa efnt til fjölmennra mótmæla. þeir hafa keyrt á traktorum að Kristjánsborgarhöll og háskólanum í Árósum. Bændur saka ríkisstjórnina um brot ástjórnarskrá með lagabreytingunum.

Bændaforystan vill að gildistöku laganna verði frestað og segir að ekki hafi verið lagt mat á afleiðingar þeirra fyrir danskan landbúnað.

Lífvana haf

Ástæða þessara lagabreytinga er að víða í kringum Danmörku, einkum í fjörðum, er hafið nánast lífvana vegna þess að þar er ekkert súrefni og fiskur, krabbar og aðrar lífverur hafa hreinlega drepist eða flúið. Súrefnisskorturinn stafar af köfnunarefni í áburði bænda sem berst út í sjó. Vísindamenn hafa bent á þetta í mörg ár en það er fyrst á síðustu misserum sem stjórnmálamenn hafa verið reiðubúnir að hlusta og gera eitthvað í málinu. Í tíð síðustu ríkisstjórnar mið- og vinstriflokka náðist samkomulag um lagafrumvarpið sem er til afgreiðslu í dag.

Mótmæltu við háskólann í Árósum

Forystumenn bænda viðurkenna að köfnunarefni úr áburði ber ábyrgð á ástandi hafsins en það gera ekki allir bændur og einhverjir tugir þeirra mótmæltu á dráttarvélum sínum við háskólann í Árósum þar sem stofnunin sem mest hefur rannsakað ástand hafsins er til húsa. Bændaforystan segir að reglur um áburðarnotkun séu hertar um of og og kippi fótunum undan búrekstri margra.

Formaður í vanda

Troels Lund Poulsen, formaður Venstre, er í miklum vanda vegna þess að stór hluti flokksmanna er andvígur lagabreytingunum. Venstre, sem er systurflokkur Framsóknarflokksins, á rætur að rekja til landbúnaðarsamfélagsins. Fimm af átján þingmönnum flokksins lýstu því yfir fyrir atkvæðagreiðslu um frumvarpið að þau ætluðu að greiða atkvæði gegn því þó að flokkurinn hefði átt þátt í samningu þess undir forystu Troels Lund Poulsens. Flokkurinn er því klofinn og raddir hafa heyrst um að rétt væri að skipta um formann.

Fyrsti fyrirspurnartíminn

Í fyrsta fyrirspurnartíma Andy Burnhams sem forsætisráðherra Bretlands saumaði Kemi Badenoch, leiðtogi Íhaldsflokksins, hart að Burnham og spurði hann meðal annars hvort hann gæti nefnt eina beiðni um útgjöld sem hann hefði hafnað. Burnham svaraði að það væri nauðsynlegt að lækka útgjöld til velferðarmála og beindi því til Badenoch að þau gætu sameiginlega reynt að ná tökum á vandamálunum frekar en að standa í pólitísku hnútukasti. Badenoch sagði að forsætisráðherra yrði að vera leiðtogi, hann væri ekki í vinsældakeppni. Hún spurði hvað hann hefði skorið niður og Burnham sagðist hafa skorið niður skatta og uppskar fagnaðarlæti þingmanna Verkamannaflokksins.

Spenna í Svíþjóð

Óvænt spenna er hlaupin í kosningabaráttuna í Svíþjóð. Fyrir þremur vikum virtist útlitið vonlítið fyrir ríkisstjórn Ulfs Kristerssons. Þá mældist um tíu prósentustiga munur á flokkunum sem standa að Tidö-stjórninni og stjórnarandstöðunni. Nú er munurinn kominn í 2,6% og allt getur gerst. Frjálslyndi flokkurinn, Liberalerna, virtist dæmdur til að falla af þingi og ná ekki fjórum prósentum atkvæða sem þarf til að fá menn kjörna. Nú eru þeir komnir í 3,3% og allt getur gerst. Jafnaðarmenn hafa á móti tapað verulega. Síðustu dagar baráttunnar verða mjög spennandi.

Hér má heyra Heimsglugga vikunnar

Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson fóru víða í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Til umræðu voru árásir Rússa í Leipzig og möguleg viðbrögð Vesturlanda, mótmæli danskra bænda og bresk og sænsk stjórnmál.

03.09.2026 10:58


<< Til baka
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörður: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000137
Talið frá 03.09.2026
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.