RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUÐSKILIÐ | ENGLISH | POLSKI

Rýmka reglur um fjölda bílastæða við nýbyggingar

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks, Viðreisnar og Miðflokksins í umhverfis- og skipulagsráði samþykktu í gær að afnema hámark á fjölda bílastæða við nýbyggingar og hækka viðmið um hversu mörg stæði ættu að fylgja íbúðum. Fulltrúar Samfylkingarinnar greiddu atkvæði gegn breytingunni.

Með breytingunni á einnig að skilja á milli kaupa og leigu á húsnæði og bílastæði, eftir því sem kostur er, svo kostnaður við stæðin falli á notendur.

Meirihlutinn segir að markmiðið með breytingunni sé að tryggja að fjöldi bílastæða ráðist af gagnsæju, málefnalegu og staðbundnu mati í stað ósveigjanlegra hámarksgilda. Fulltrúar hans segja að breytingin leiði þó ekki sjálfkrafa af sér fjölgun bílastæða heldur gefi hún húsbyggjendum færi á að mæta þörfum og kröfum markaðarins.

Fulltrúar Samfylkingarinnar bókuðu að með því að gera fjölda bílastæða við nýbyggingar alveg frjálsan sé hætta á að rísi lakari hverfi fyrir almenning þar sem bílakjallarar og bílaumferð stýri hönnuninni í stað lífsgæða íbúa. Þau segja mikilvægt að tryggja að bíllausir íbúðakaupendur séu ,,ekki knúnir til að niðurgreiða fimm milljóna bílastæði fyrir aðra".

Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins sagði ekki nægilega vel girt fyrir geðþóttaákvarðanir um bíla- og hjólastæðafjölda. Auk þess væri fráleitt að hækka lágmarksviðmið fyrir námsmannaíbúðir.

Þó að viðmið um fjölda bílastæða út frá stærð íbúðar hækki er ekki sjálfgefið að bílastæðafjöldinn við húsið taki mið af því. Í tillögunni segir að víkja megi frá viðmiðunum, bæði til að fækka eða fjölga bílastæðum. Slíkt verður þó að rökstyðja.

Í greinargerð meirihlutans með tillögunni er vísað í minnisblað frá EFLU í sumar um breytingar á reglum um bílastæðafjölda. Höfundur minnisblaðsins sagði að hámarksgildi réði ekki mestu um fjölda bílastæða í reynd. Þar skiptu kostnaður og aðrir þættir meira máli. Þar sagði að sjaldan hefði verið byggt upp í hámarksfjölda bílastæða.

EFLA taldi því ekki sjálfgefið að bílastæðum myndi fjölga við afnám hámarksviðmiðs. Þó gæti mikið framboð bílastæða aukið bíleign og akstur, hækkað húsnæðiskostnað og dregið úr skilvirkri landnýtingu. EFLA taldi betra að hækka hámarksgildi fyrir fjölda bílastæða en að nema þau úr gildi.

03.09.2026 13:53


<< Til baka
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörður: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000138
Talið frá 03.09.2026
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.