RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUÐSKILIÐ | ENGLISH | POLSKI

Fólk þurfi að líta á fréttir sem nauðsynjavöru

Logi Einarsson, menningar- og nýsköpunarráðherra, segir nauðsynlegt að efla vitund almennings, ekki síst ungs fólks, um mikilvægi þess að greiða fyrir vandaðan fréttaflutning.

Hann segir að mun minni vilji sé hér á landi en á hinum Norðurlöndunum til að greiða fyrir fréttaefni og að ungt fólk sé sérstaklega ólíklegt til þess að borga fyrir fréttaáskriftir.

,,Við þurfum að ná þeirri menningu að fólk líti á þetta sem nauðsynjavöru," segir Logi. Fólk þurfi að átta sig á mikilvægi þess að fréttum sé ritstýrt af fagfólki og vera tilbúið að greiða fyrir slíkan fréttaflutning.

Ætla í vitundarvakningu

Logi segir stjórnvöld ætla að fara í vitundarvakningu í samstarfi við Blaðamannafélag Íslands til að auka skilning fólks á hlutverki fjölmiðla.

Þetta sé hluti af stærri aðgerðum stjórnvalda til að bregðast við erfiðri stöðu fjölmiðla. Hefðbundnar tekjur hafi dregist saman á sama tíma og stór hluti nýrra auglýsingatekna renni til erlendra tæknifyrirtækja.

Logi segir fjölmiðla sjaldan hafa verið mikilvægari en nú, þegar samfélagsmiðlar og ný tækni hafa breytt því hvernig fólk nálgast upplýsingar.

Sýn hætti með sjónvarpsfréttir fyrr í vikunni. Síðasti fréttatími var sendur út á mánudag, eftir 40 ára sögu sjónvarpsfrétta á Stöð 2 og síðar Sýn. Í tilkynningu frá Sýn segir að rekstur sjónvarpsfrétta hafi verið ósjálfbær um nokkurt skeið og að Sýn hafi borið ábyrgð á að bregðast við þeirri stöðu.

Menningar- og nýsköpunarráðherra segir mikilvægt að breyta viðhorfi ungs fólks til fréttaáskrifta. Stjórnvöld ætli að efla miðlalæsi og standa fyrir vitundarvakningu.

Ekki lausnin að draga úr hlut RÚV á auglýsingamarkaði

Hann segir stjórnvöld einnig þurfa að styðja fjárhagslega við einkarekna fjölmiðla. Ein leið sem verið sé að skoða er að hluti af auglýsingatekjum RÚV renni til einkarekinna miðla.

Hann hafnar hins vegar því að lausnin sé að draga einfaldlega úr hlut RÚV á auglýsingamarkaði. Ástæðan sé meðal annars sú að auglýsingaféð sem losnar við það gæti allt eins runnið til samfélagsmiðla og annarra erlendra tæknifyrirtækja í stað íslenskra fjölmiðla.

Fjölmiðlar þurfi að takast á við nýja tækni

Logi segir fjölmiðlamarkaðinn standa á tímamótum. Tæknin þróist með miklum hraða og gervigreind sé dæmi um þróun sem eigi sér engin landamæri.

Í aðgerðaáætlun stjórnvalda eru meðal annars áform um að efla miðlalæsi, nýsköpunarstyrki og blaðamennsku sem starfsgrein. Logi segir einnig mikilvægt að styðja við héraðsmiðla, sem gegni mikilvægu hlutverki í að miðla fréttum úr nærumhverfi fólks.

Horfa má á Kastljós í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.

Menningar- og nýsköpunarráðherra segir mikilvægt að breyta viðhorfi ungs fólks til fréttaáskrifta. Stjórnvöld ætli að efla miðlalæsi og standa fyrir vitundarvakningu.

03.09.2026 22:06


<< Til baka
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörður: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000165
Talið frá 03.09.2026
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.