RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUÐSKILIÐ | ENGLISH | POLSKI

,,Fólk var að missa alla ættingja sína í minningum"

Baldur Bragi Eðvarðsson missti vinnuna í hruninu og þurfti að minnka við sig. Hann tók á leigu geymslu undir stóran hluta búslóðarinnar og þann 5. apríl 2018 gjöreyðilagðist nánast allt sem þar var í geymslubrunanum svokallaða í Miðhrauni í Garðabæ.

,,Það var náttúrlega sót yfir öllu en þarna voru hlutirnir búnir að standa í 50 sentímetra djúpu vatni í einhverja daga þannig að það var allt ónýtt," segir Baldur Bragi. Hann tók tvo kassa og bar í bílinn og tók svo mynd af litlum grænum bangsa sem tilheyrt hafði börnunum og skildi hann eftir.

Hvaða þýðingu hafa hlutir?

Í Sporum, nýjum hlaðvarpsþætti á Rás 1, ræðir Arnhildur Hálfdánardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, við fólk sem missti búslóðina í geymslubrunanum í þeim tilgangi að skilja betur mannlegt eðli, það hvernig við tengjumst efnislegum hlutum og þýðingu þeirra fyrir okkur.

,,Mér fannst ég ekki vera að missa mikið sem ég gæti ekki lifað án en þarna var fólk kannski að missa alla ættingjana sína í minningum, upplifunin var ótrúleg að vera inni í þessari lykt, í myrkrinu sem fylgdi þessu og heyra í fólkinu í kring," segir Baldur Bragi.

Bruninn setur mark sitt á hversdagslíf Baldurs og fjölskyldu hans enn þann dag í dag. Sama máli gegnir um Ragnheiði Benediktsdóttur sem var á milli íbúða og missti allt sitt í brunanum. Það voru ekki allir sem skildu þetta áfall og umræðan í garð þeirra sem urðu fyrir eignatjóni var á köflum óvægin.

Hægt er að hlusta á Spor í spilara RÚV og á hlaðvarpsveitum.

Baldur Bragi Eðvarðsson missti stóran hluta búslóðar sinnar í geymslubrunanum svokallaða árið 2018. Afleiðingarnar áttu eftir að lita hversdagslíf hans og hvernig hann tengist hlutum um ókomna tíð.

02.09.2026 14:01


<< Til baka
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörður: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000135
Talið frá 03.09.2026
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.