Nýnemar boðnir velkomnir í MR 270 nýnemar í Menntaskólanum í Reykjavík tóku á flug í dag þegar elstu nemendur skólans buðu þá velkomna á hefðbundinn hátt með svokallaðri tolleringu. Hefðin á sér yfir hundrað ára sögu við skólann og er táknræn athöfn til að bjóða nýnema velkomna í hóp hinna lærðu - með því að kasta þeim hátt upp í loft, grípa þá og hefja upp á ný. Tolleringin virðist hafa farið vel fram í ár og fengu flestir mjúka lendingu. Fréttastofa ræddi við nemendur í MR í dag.
03.09.2026 14:37
<< Til baka
|
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C Stykkishólmur: 9,1°C Ísafjörður: 7,9°C Blönduós: 9,7°C Akureyri: 8,5°C Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað Höfn: 9,1°C Selfoss: 10,2°C Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni
DAGSKRÁ
Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá
GAMALT.NET
Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt
|
|