RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUÐSKILIÐ | ENGLISH | POLSKI

Hvíta húsið sagt hafa þrýst á geimferðafyrirtæki að hunsa ráðstefnu í París

Hvíta húsið er sagt hafa lagt hart að bandarískum geimferðafyrirtækjum að hafna boði Emmanuels Macron Frakklandsforseta um að mæta á umfangsmikla tveggja daga ráðstefnu um málefni geimsins sem haldin verður í París í næstu viku.

Vefritið Politico hefur eftir þremur ónafngreindum heimildarmönnum að embættismaður á tækni- og vísindastofu Hvíta hússins hafi átt einkasamtöl við fulltrúa fyrirtækja á borð við SpaceX, Stoke Space, K2 Space og Astra og sagt þátttöku þeirra geta litið út sem óbeinn stuðningur við stefnu Evrópusambandsins.

Embættismaðurinn er sagður hafa viðhaft talsverðar úrtölur þótt ákvörðunin væri undir fyrirtækjunum sjálfum komin. Hann hafi ýjað að því að Frakkar hefðu ekki ráðfært sig við Bandaríkjastjórn um efni ráðstefnunnar og vildu helst hamla allri samkeppni.

Málstofum ráðstefnunnar væri heldur ekki ætlað að koma að sjónarmiðum Bandaríkjanna og gætu skyggt á viðleitni þeirra í geimferðamálum. Politico segir tvo heimildarmannanna tengjast geimferðafyrirtækjum og þann þriðja stjórnmálum.

Philippe Adam framkvæmdastjóri ráðstefnunnar sagði við AFP-fréttaveituna í júlí dagljóst að Bandaríkjamenn yrðu að vera viðstaddir. Hvíta húsið hefur ekki enn svarað fyrirspurnum AFP um málið.

Frakkar og Þjóðverjar eru gestgjafar ráðstefnunnar þangað sem leiðtogar 120 landa og fyrirtækja mæta til að ræða áskoranir tengdar nýtingu geimsins. Hún verður haldin í Grand Palais des Champs-Élysées, sem reist var fyrir heimssýninguna árið 1900.

03.09.2026 06:15


<< Til baka
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörður: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000137
Talið frá 03.09.2026
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.