RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUÐSKILIÐ | ENGLISH | POLSKI

Búðinni Fiska gengur vel

Fiska er matvöru·verslun í Kópavogi.

Fiska er á Nýbýlavegi.

Búðinni gengur mjög vel.

Þess vegna er oft mikið að gera í búðinni.

Árni Elvar Eyjólfsson er eigandi Fisku.

Árni rekur búðina með pabba sínum.

Búðin er orðin of lítil.

Þess vegna er verið að stækka búðina.

Búðin verður tvöfalt stærri.

Árni segir: Við getum selt miklu fleiri vörur.

Þess vegna stækkum við búðina.

Fiska selur vörur fyrir mikið af peningum

Fiska var opnuð árið 2020.

Síðan þá hefur salan sexfaldast.

Í fyrra seldi Fiska vörur fyrir yfir 1650 milljónir króna.

Fiska græddi 130 milljónir króna.

Árni segir: Í ár selur Fiska fyrir meira en 2 milljarða króna.

Hvernig byrjaði þetta?

Árni byrjaði að selja vörur árið 1994.

Þá var Árni 17 ára.

Hann seldi fisk í Kolaportinu.

Fiskurinn kom frá ömmu hans og afa í Grundarfirði.

Seinna opnaði Árni búð í Grundarfirði.

Svo byrjaði hann að selja matvöru frá Asíu.

Síðan opnaði hann Fisku á Nýbýlavegi.

Fiska selur vörur frá öllum heiminum

Fyrst seldi Fiska aðallega vörur frá Asíu.

Í dag selur Fiska vörur frá mörgum löndum.

Í búðinni er til dæmis hægt að kaupa:

Krydd frá Asíu, Afríku og Suður-Ameríku.Sérstakar fisktegundir eins og ansjósur og sardínur.Ferskt kjöt frá Íslandi og öðrum löndum.

Árni segir: Fiska er ekki bara búð með vörur frá Asíu.

Fiska er alþjóðleg búð.

28.08.2026 14:00


<< Til baka
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörður: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000144
Talið frá 03.09.2026
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.