RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUÐSKILIÐ | ENGLISH | POLSKI

Hlédrægt tónskáld nýuppgötvað

Áhugi á tónlist Inu Boyle hefur vaknað á seinni árum með bylgju rannsókna og endurvakningar sem grafið hefur úr gleymsku fleiri kventónskáld frá fyrri öldum. Mörg af tónverkum hennar hafa nú verið frumflutt og hljóðrituð í fyrsta skipti.

Fékk verðlaun Carnegie-sjóðsins fyrst kvenna

Ina Boyle fæddist á sveitasetrinu Bushey Park nálægt borginni Enniskerry í Wicklow-sýslu á Írlandi 8. mars 1889. Faðir hennar, sem var prestur sagði henni til í tónlist þegar hún var á barnsaldri, og einnig fékk hún að læra á fiðlu og selló.

Frá 11 ára aldri lærði hún tónfræði og hljómfræði, 15 ára hóf hún tónlistarnám hjá Charles Wood í gegnum bréfaskriftir og hún fékk síðan að læra hjá fleiri tónlistarkennurum í Dublin.

Árið 1913, þegar hún var tuttugu og fjögurra ára, fékk hún 1. og 2. verðlaun fyrir tónsmíðar í tónskáldakeppni í Sligo. Hljómsveitarverk hennar, ,,The magic harp" fékk verðlaun árið 1920 í keppni Carnegie-sjóðsins og var flutt á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Lundúna. Ina Boyle var fyrst kvenna til að fá þessi verðlaun.

Tónlistarmenntun í Lundúnum

Það var svo árið 1923 sem Ina Boyle hóf ferðir til Lundúna til þess að fara í tónsmíðatíma hjá tónskáldinu Ralph Vaughan Williams. Um svipað leyti kynntist hún nokkrum öðrum ungum kventónskáldum frá Bretlandseyjum, Elizabeth Maconchy, Elisabeth Lutyens og Grace Williams, og varð það henni til uppörvunar, en sjálf var Ina Boyle hlédræg og hógvær. Meðal stærri verka sem Ina Boyle samdi á 3. áratug 20. aldar voru sinfónía nr.1 árið 1927 og var það fyrsta sinfónían eftir írska konu. Sinfóníu nr.2 samdi hún svo árið 1930.

Einangrunin eykst

Þegar fram liðu stundir átti Ina sífellt erfiðara með að ferðast til Englands frá Bushey Park í Wicklow þar sem hún átti enn heima ásamt foreldrum sínum. Heilsa þeirra var falin að bila og það kom í hennar hlut að hugsa um þau. Ýmsum vinum Inu Boyle rann til rifja hvað einangrun hennar var mikil á sveitasetrinu í Wicklow. En sjálf lét hún það ekki á sig fá og skrifaði einni vinkonu sinni.

Mér þykir svo vænt um þetta blessaða hús að ég læt það ekki angra mig þótt ég fái ekki mikinn frama á tónlistarsviðinu, þótt auðvitað hefði það verið mjög ánægjulegt, og á meðan ég get verið hérna er ég ánægð.

Ina Boyle hélt tónsmíðum sínum ótrauð áfram, meðal annars samdi hún fiðlukonsert á árunum 1931-2 og strengjakvartett árið 1934, auk margra söngva. En flest lágu verk hennar óhreyfð og óflutt.

Tónsmíðar stríðsáranna

Árið 1939 dundi heimsstyrjöldin síðari yfir og jók enn á einangrun Inu, því nú varð hún að hætta ferðalögum sínum til Lundúna. Árið 1942 samdi hún verk sem fékk nokkra útbreiðslu, stuttan forleik sem hlaut heitið ,,Wild Geese" eða ,,Villigæsir". Og skömmu eftir stríðið, árið 1948, lauk hún við eitt besta verk sitt, söngverkið ,,Still falls the rain" við hluta af ljóði eftir Edith Sitwell sem fjallar um loftárásirnar á London 1940. En Inu til mikilla vonbrigða vildi skáldkonan ekki leyfa flutning á verkinu og sagðist ekki geta samþykkt að eingöngu hluti af ljóðinu væri notaður sem texti. Vegna þessa var verkið aldrei flutt að Inu Boyle lifandi.

Viðurkenningin kemur þegar fram líða stundir

Ina Boyle bjó í Bushey Park í Wicklow til æviloka. Hún dó úr krabbameini árið 1967, 78 ára að aldri. Það er óhætt að segja að orð kennara hennar, Ralphs Vaughan Williams, úr bréfi sem hann skrifaði henni árið 1936, hafi orðið að áhrínsorðum. Hann segir þar:

Mér finnst það mikið hugrekki hjá þér að halda áfram þegar þú færð svona litla viðurkenningu. Það eina sem ég get sagt er að stundum kemur viðurkenningin þegar fram líða stundir.

Þetta er að koma fram núna þegar mörg verka Inu Boyle, svo sem söngverkið ,,Still falls the rain", fiðlukonsert hennar og strengjakvartett, hafa verið frumflutt og hljóðrituð í fyrsta skipti.

Fjallað verður um Inu Boyle í þættinum ,,Á tónsviðinu" fim. 3. sept. á rás 1 kl. 14.03.

03.09.2026 12:17


<< Til baka
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörður: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000135
Talið frá 03.09.2026
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.