RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUÐSKILIÐ | ENGLISH | POLSKI

Mögulegt að dómari lýsi réttarhöldin ógild

Réttarhöld yfir Lindsay Clancy hafa staðið í um fimm vikur. Hún er ákærð fyrir að myrða börnin sín þrjú í janúar 2023. Kviðdómi hefur ekki tekist að komast að niðurstöðu um sakhæfi Clancy. Komist hann ekki að sameiginlegri niðurstöðu er mögulegt að dómarinn lýsi réttarhöldin ógild og þeim ljúki án niðurstöðu.

Clancy hefur viðurkennt að hafa orðið börnunum að bana en lögmaður hennar segir hana hafa þjáðst af alvarlegum geðsjúkdómi, fæðingarþunglyndi og fæðingarsturlun. Hún segist sjálf hafa heyrt raddir sem skipuðu henni að myrða börnin.

Málið hefur ekki aðeins vakið spurningar um sekt eða sakleysi Clancy heldur einnig umræðu um geðheilbrigðisþjónustu nýbakaðra mæðra í Bandaríkjunum. Fjöldi fólks hefur safnast saman fyrir utan dómshúsið til að styðja Clancy.

03.09.2026 20:18


<< Til baka
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörður: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000137
Talið frá 03.09.2026
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.