Mikael Emil Kaaber hefur haft í nægu að snúast í sumar. Hann hefur farið um allt land í gervi íþróttaálfsins og leikið í kvikmyndinni Hvar er draumurinn sem er frumsýnd í byrjun þessa mánaðar. Svo hefur hann verið að æfa fyrir leikárið. Mikael var gestur Kristjáns Freys Halldórssonar í þættinum Helgarútgáfunni á Rás 2 þar sem hann fór yfir það sem á daga hans hefur drifið upp á síðkastið.
Myrkrið meira viðeigandi í leikhúsinu
Söngleikurinn Moulin Rouge, þar sem Mikel er í aðalhlutverki, rataði nýverið aftur á fjalir Borgarleikhússins. Í vikunni hefur hann líka verið að æfa nýtt verk sem er frumsýnt eftir þrjár vikur og nefnist Svikasögur.
Mikael segir hálfundarlegt að mæta aftur í leikhúsið eftir veturinn og að vera þar í síðsumarsbirtunni. Vetrarmyrkrið finnst honum passa leikhúsinu betur.
Ég hef sýnt Moulin Rouge í haust, vetur og vor og það var skrýtið að mæta í vinnuna þegar það var sól úti. Það kemur hlé og það er sól, sýningunni lýkur og það er sól. Þá er allt annað andrúmsloft yfir leikhúsbatterínu. Manni finnst myrkrið eiginlega meira viðeigandi.
Fann togstreitu á milli þess að fara í leiklist eða fótbolta
Mikael ólst upp í Árbæ og gekk í Árbæjarskóla. Hann æfði fótbolta með Fylki og lengi togaðist fótboltinn á við leiklistina.
,,Það var þessi togstreita, á ég að fara í fótbolta eða leiklist? Kannski þetta sé bara klassísk togstreita, maður er að sjá fleiri og fleiri dæmi um knattspyrnumenn sem vilja líka vera skapandi, tónlistarmenn og svona, sem er gaman að sjá. En það var togað í mig úr tveimur áttum."
Lék í leikfélagi Verslunarskólans og vissi þá hver stefnan yrði
Mikael man eftir augnablikinu þegar hann ákvað að stíga skrefið og velja leiklistina fram yfir fótboltann. Þá var hann í Verslunarskóla Íslands, í leiklistinni, að setja upp leikrit byggt á kvikmyndinni Breakfast Club. Mikael fór með hlutverk nördsins, að eigin sögn, og eftir þá reynslu á sviðinu var ekki aftur snúið.
Þá ákvað ég að hætta í fótboltanum og snúa mér alveg að leiklistinni. Það var vendipunkturinn og ég sé ekki eftir því. Þetta átti vel við mig og mér finnst þetta ofboðslega gaman.
Léti sér nægja að fara í bumbubolta í dag
Þegar Mikael er spurður hvort hann hafi verið efnilegur viðurkennir hann að hafa hitt þjálfarann sinn í Kringlunni og fengið þær fréttir að hann hafi verið það á sínum tíma. En hann segir brosandi af og frá að það sé enn efni í honum á vellinum.
Ég væri bara í bumbubolta í dag, enginn atvinnumaður.
En í starfi sínu hefur hann þó fengið tækifæri til að munda knöttinn. Hann leikur í sjónvarpsþáttunum Boltamömmur í sjónvarpi Símans þar sem hann leikur þjálfara yngri flokks Gróttu.
Þá er gott að hafa þetta í vasanum.
,,Einn stærsti heiður lífs míns"
Auk þessa er Mikael kominn í teymi þeirra sem færa landsmönnum Áramótaskaupið í ár. Hann er gríðarlega stoltur af því.
Það er einn stærsti heiður lífs míns að fá að vera partur af þessu. Þetta er rosalega dramatísk setning að segja, en þetta er það í raun.
Hann hefur reynslu af að gera Krakkaskaupið, sem hann stýrði 2019-2021. Sjálft Áramótaskaupið segir hann að sé langþráð næsta skref.
Ég hef alltaf átt mér draum um að mögulega fá að gera það einn daginn. Svo fékk ég tilboð til að stíga inn í þetta teymi sem fulltrúi unga fólksins.
Nú þegar september er runninn upp er strax nóg af atburðum á árinu sem auðvelt er að spauga með.
Við erum búin að taka einn fund og þetta lofar mjög góðu. Enda mjög viðburðaríkt ár. Þetta er pólitískt stórt ár, sveitarstjórnakosningar og ESB, svo eru það minkarnir. Alls konar hefur gerst á þessu ári sem verður gaman að fara yfir.,,Þetta er pólitískt stórt ár, sveitarstjórnakosningar og ESB, svo eru það minkarnir," segir Mikael Emil Kaaber, einn höfunda Áramótaskaupsins í ár, um möguleg umfjöllunarefni í Skaupinu.
Hvar er draumurinn?
Næst á dagskrá er þó fumsýning á söngleikjamyndinni Hvar er draumurinn. Hún er byggð á lögum og textum Sálarinnar hans Jóns míns og Mikael fer þar með stórt hlutverk undir leikstjórn vinar síns Höskuldar Þórs Jónssonar sem hann kynntist í leikfélagi Verslunarskólans.
,,Þetta er pólitískt stórt ár, sveitarstjórnakosningar og ESB, svo eru það minkarnir," segir Mikael Emil Kaaber, einn höfunda Áramótaskaupsins í ár, um möguleg umfjöllunarefni í Skaupinu.