Sjónvarpsstöðin Sýn hættir að sýna fréttir.
Síðasti fréttatíminn er í kvöld.
Þátturinn Ísland í dag hættir líka.
Af hverju hættir Sýn með fréttir?
Sýn segir að fólk lesi meira fréttir á netinu.
Fólk horfir minna á fréttir í sjónvarpi.
Þess vegna hættir Sýn með fréttir í sjónvarpi.
Sýn ætlar að hafa fleiri fréttir á netinu á Vísi.
Sýn ætlar líka að hafa fleiri fréttir í útvarpinu á Bylgjunni.
Sýn segir að íslenskir fjölmiðlar fái minni peninga.
Peningarnir koma úr auglýsingum.
Flestir peningar fyrir auglýsingar fara til stórra erlendra fyrirtækja.
Þess vegna er erfitt fyrir Sýn að keppa við Ríkis·útvarpið.
Fréttir hafa verið á Stöð 2 frá árinu 1986.
Stöð 2 heitir núna Sýn.