RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUÐSKILIÐ | ENGLISH | POLSKI

Vanskil heimila og fyrirtækja í sögulegu lágmarki

Vanskil heimila og fyrirtækja eru í sögulegu lágmarki, samkvæmt greiningu Motus. Fjárhagslegt heilbrigði í hagkerfinu er gott að mati sérfræðings og í samræmi við mat Seðlabankans á skuldum heimila og fyrirækja.

Vanskil eiga við um reikninga sem eru ekki greiddir á eindaga. Vanskil eru alvarleg ef reikningarnir eru enn ógreiddir 45 dögum eftir eindaga. Motus er eitt stærsta innheimtu- og kröfustýringarfyrirtæki landsins, það vaktar allar breytingar á vanskilum og hefur gert um árabil.

Leifur Grétarsson, forstöðumaður viðskiptastýringar Motus segir að vanskil einstaklinga hafi lækkað talsvert í Covid-tímanum.

,,Og þau eru enn að lækka. Ég myndi segja að í sögulegu samhengi þá hafa vanskil aldrei verið lægri hjá einstaklingum og við erum ekki að sjá miklar breytingar þar á í okkar tölum og við fylgjumst náið með því.

Koma þessar tölur ekki svolítið á óvart? Ekki síst í ljósi umræðu um mikla verðbólgu og háa vexti?

,,Jú, það kemur flestum á óvart þegar maður sýnir þeim þessar tölur að vanskil séu lág eftir langan tíma af háum stýrivöxtum og hárri verðbólgu. Það er náttúrulega rosalega mikill þrýstingur í hagkerfinu og umræðan á kaffistofunum landsins er þannig að það gangi ekkert svakalega vel. En þetta er ákveðið heilbrigðisvottorð sem þessi gögn sýna. Ég myndi segja að fjárhagslegt heilbrigði í hagkerfinu sé gott ef litið er til vanskila," segir Leifur.

Vanskil heimila og fyrirtækja hafa aldrei mælst minni en nú. Það sama á við um skuldastöðu. Niðurstöðurnar bera merki um heilbrigt hagkerfi, þrátt fyrir háa verðbólgu og vexti segir sérfræðingur.

Vanskil fyrirtækja séu einnig lítil og hafi minnkað undanfarin tvö ár, en á síðustu mánuðum eru merki um að vanskil aukist í byggingar- og ferðamannageiranum.

Samkvæmt gögnum frá Seðlabanka Íslands hafa innlán, það er peningar sem fólk geymir á bankareikningum sínum, aukist talsvert á undanförnum árum.

Appelsínuguli liturinn á stöplaritinu hér að ofan sýnir skuldir fyrirtækja og dökkblái skuldir heimila frá árinu 2003. Skuldirnar jukust fram að bankahruni þegar þær náðu hámarki en hafa farið minnkandi síðan og staðið nokkurn veginn í stað á síðustu tíu árum.

,,Það eru vissulega alltaf ákveðnir hópar sem skera sig útúr í þessu en við skoðum þetta eftir aldri og búsetu og atvinnugreinum og öllum hliðum teningsins. Lífskjör á Íslandi eru frábær og það virðist vera að það gangi vel hjá flestum, auðvitað aldrei öllum en almennt séð er fjárhagslegt heibrigði á Íslandi mjög gott," segir Leifur.

03.09.2026 19:01


<< Til baka
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörður: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000138
Talið frá 03.09.2026
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.