Haraldur konungur í Noregi er dáinn.
Haraldur var 89 ára.
Heilsa Haraldar var ekki góð undanfarið.
Haraldur fór á spítala 17. ágúst.
Hákon er sonur Haraldar.
Hákon verður nú konungur Noregs.
Haraldur varð konungur árið 1991.
Haraldur var konungur í yfir 30 ár.
Þegar Haraldur var barn var stríð.
Fjölskylda Haraldar flúði frá Noregi.
Fjölskyldan fór aftur til Noregs eftir stríðið.
Haraldur giftist Sonju árið 1968.
Sonja var ekki úr konungsfjölskyldu.
Pabbi Haraldar vildi ekki leyfa þeim að giftast.
Haraldur vildi samt giftast Sonju.
Þess vegna fékk Haraldur leyfi.
Fólk í Noregi fór að líka vel við Sonju.
Haraldur og Sonja urðu mjög vinsæl.
Haraldur og Sonja eignuðust 2 börn.
Börnin heita Marta Lovísa og Hákon.
Hákon er yngri en Marta Lovísa.
Samt verður Hákon konungur.
Þannig voru lögin í Noregi.
Haraldur vildi að Noregur væri nýtt og gott land.
Haraldur var vinsæll konungur.
Haraldur studdi mannréttindi.
Til dæmis réttindi hinsegin fólks.
Og réttindi innflytjenda.
Undanfarið hefur verið mikið rætt um konungsfjölskylduna.
Sumir eru ekki ánægðir með fjölskylduna.
Mette Marit er kona Hákons.
Mette Marit verður nýja drottningin.
Margir eru ekki ánægðir með Mette Marit.
En fólk var alltaf mjög ánægt með Harald konung.
Og Sonju drottningu.
Þegar konungur deyr verður erfingi strax nýr konungur.
Þess vegna er Hákon nú þegar orðinn konungur.
Dóttir Hákons verður nýr erfingi.
Dóttirin heitir Ingiríður Alexandra.