Þurfa að loka hluta gatnamóta vegna bilaðra ljósa Umferðarljósin á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar og Nýbýlavegs, Dalvegar og Skemmuvegar eru óvirk. Þetta veldur nokkrum vandræðum því búið er að loka Nýbýlavegi í báðar áttir yfir brúna yfir á Breiðholtsbraut, einnig beygjuakrein til vesturs yfir brúna í Mjódd og beygju að Breiðholtsbraut og til suðurs. Ljósin biluðu í morgun og er unnið að því að gera við þau. Óvíst er hversu langur tími líður áður en þau komast í lag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir viðbúið að umferð tefjist af þessum sökum. Hún brýnir fyrir bílstjórum að fylgja umferðarmerkjum og hugsanlega að fara aðra leið seinnipartinn. Safnmynd.Moritz Kindler
03.09.2026 13:35
<< Til baka
|
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C Stykkishólmur: 9,1°C Ísafjörður: 7,9°C Blönduós: 9,7°C Akureyri: 8,5°C Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað Höfn: 9,1°C Selfoss: 10,2°C Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni
DAGSKRÁ
Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá
GAMALT.NET
Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt
|
|