Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, hélt í dag af stað til Írans. Þar ætlar hann að reyna að miðla málum í stríði Írana og Bandaríkjamanna. Lavrov hyggst ræða við Abbas Araghchi, starfsbróður sinn í írönsku ríkisstjórninni.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lýsti því yfir fyrir skemmstu að hann væri til í að stuðla að friði milli Bandaríkjanna og Írans. Á sama tíma reyna Bandaríkin að stilla til friðar milli Rússlands og Úkraínu.
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af
gamalt.net
veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.