RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Fólk sem ,,hefði afskaplega gott af því að Halla Tómasdóttir kæmi inn í stofuna til þess"

Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson er fjölskyldusaga um föður, móður og þrjú börn þeirra. 20 ár eru liðin frá andláti elsta barnsins, Danna, en hann á alveg jafn stóran þátt í að segja söguna eins og systkini hans og foreldrar.

,,Þetta er mjög raunsæ saga. En Danni, það er svona önnur vídd sem að ég var hrifin af," segir Kolbrún Bergþórsdóttir um bókina.

,,Þetta er fólk sem nær ekki tengslum, þetta er algjörlega tengslalaust fólk. Það hefði afskaplega gott af því að Halla Tómasdóttir kæmi inn í stofuna til þess og segði því hvernig ætti að tala almennilega saman," segir Kolbrún en sorgin vegna fráfalls Danna hefur sundrað fjölskyldunni í stað þess að sameina hana. ,,En einhvern veginn hef ég á tilfinningunni að jafnvel þó að Danni hefði ekki farið þá væru þau samt í vondum málum, af því að þeim er ómögulegt að mynda tengsl."

Vantar herslumuninn

Kolbrún segir að hún hefði sjálf sem lesandi viljað ná sterkari tengslum við persónur bókarinnar. Annars er margt vel gert í bókinni og hún er áhugaverð að mati Kolbrúnar. ,,Mér fannst kannski vanta herslumuninn en mér finnst hún góð."

Einn kafli var í sérstöku uppáhaldi hjá Kolbrúnu, þegar móðirin hellir sér yfir erlenda afgreiðslustúlku í stórmarkaði. ,,Mér leið eins og ég væri í röðinni og væri að horfa á þetta og það kemur þessi óþægindatilfinning."

,,Greinilega þaulhugsað"

Ingibjörg Iða Auðunardóttir var einnig hrifin af bókinni en líkt og Kolbrún segir hún að það vanti herslumuninn. Hún hefði til dæmis viljað kynnast persónu Danna betur.

,,Hún er áhugaverð og þetta er metnaðarfullt," segir Ingibjörg sem var hrifin af því hvernig frásagnirnar fléttast saman. ,,Þetta er greinilega þaulhugsað og margt í þessu sem er mjög áhugavert og góðar setningar þegar talað er um missi og tilfinninguna að vera í fjölskyldu sem er einhvern veginn ekki fjölskylda."

Gagnrýnendur Kiljunnar voru sammála um að bókin Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson væri vel unnin en að hana vantaði herslumuninn.

Gagnrýnendur Kiljunnar fjölluðu um bókina Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson í síðasta þætti. Hægt er að horfa á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan.

18.10.2026 14:00


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000886
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.