|
|
 |
|
| |
Nauðsynlegt að geta hlegið að listinni Myndlistarkennarinn og listamaðurinn Pétur Guðmundsson kenndi myndlist í grunnskóla og listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar á Ísafirði. Eftir hann liggja býsnin öll af málverkum, teikningum, vísum og lágmyndum. Hann segir nauðsynlegt að hafa húmor og geta hlegið að listinni. ,,Það er gott að setjast niður og semja vísur og limrur með myndskreytingum." Pétur segist ekkert frekar velta hlutunum fyrir sér áður en hann byrjar að teikna, klippa, líma og mála. ,,Ég geri bara það sem mér dettur í hug í hvert sinn." Pétur er afkastamikill og sýningar hans eru orðnar ríflega sextíu talsins. ,,Stundum fæ ég of margar hugmyndir, þær skortir ekki. Það kemur alltaf eitthvað nýtt." Pétri hefur dottið í hug að skreyta húsgafl á heimili fjölskyldunnar. ,,Kannski kemur það einn daginn ef eiginkonan sættist á það."
16.10.2026 07:00
<< Til baka
|
|
| |
|
| |
Gestir alls
     
Talið frá 06.09.2026 |
| |
|
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af
gamalt.net
veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.
|
| |
|
 |