RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Sækir í smiðju íslensks uppfinningamanns sem bjó í skipsflaki

Halldóri Eldjárn er margt til lista lagt og virðist vera forvitinn um allt en kannski sérstaklega allt sem tengist hljóði og rafmagni. Þessi tvö áhugasvið hans sameinast í hljóðfærum sem hann hefur dundað sér við að smíða frá grunni upp á síðkastið, rafpípuorgeli og rafhörpu.

Víðsjá heimsótti Halldór á dögunum og fyrsta hljóðið sem mætti Höllu Harðardóttur dagskrárgerðarmanni var hljóðið í pumpu pípuorgelsins.

,,Pumpan er mjög hávær. Hún var keypt í Rúmfatalagernum og var fyrst vindsængurpumpa. Svo er ég búinn að vera að reyna að hljóðeinangra hana, ég er búinn að smíða risakassa utan um hana og pakka henni inn í teppi. Það heyrist enn þá alveg ógeðslega mikið í henni," segir Halldór.

Tónsmíðar og grúsk kveikjan að hljóðfærasmíðinni

Hann hefur lengi ætlað að smíða sitt eigið pípuorgel, allt frá því að hann var fenginn til að semja tónverk fyrir orgel Hallgrímskirkju 2019.

,,Það má eiginlega segja að það hafi dregið svolítið stóran dilk á eftir sér og ég hafi svona allt að því fengið þetta á heilann."

Fyrir nokkrum árum var Halldór svo fenginn til að stýra sýningu um íslensk hljóðfæri á Norrænum músíkdögum. Við undirbúninginn komst hann í samband við Bjarka Sveinbjörnsson á Tónlistarsafninu sem benti honum á ansi forvitnileg hljóðfæri sem Magnús Karvel Guðmundsson fann upp, strokhörpu og kliðhörpu.

,,Hann var svo djúpt sokkinn í þessi sköpunarverk sín að hann var við það að svelta. Hann var fátækur og eyddi öllum sínum kröftum í þessar uppfinningar og tókst að lokum að búa til þessi tvö hljóðfæri. Hann var ekki mikið fyrir að trana sér fram og var hlédrægur," segir Halldór um þennan merka uppfinningamann sem lét sér fleira en tónlist varða.

,,Fáránlegt en ótrúlega fallegt á sama tíma"

,,En hann fann líka upp framleiðslulínu fyrir harðfisk og smíðaði öll tækin fyrir harðfiskvinnsluna Hjall. Svo var hann líka með á teikniborðinu fyrstu botnvörpuna, mögulega áður en hún var fundin upp," segir Halldór sem líkir Magnúsi við fyrirrennara fyrirtækisins Marel í fiskvinnslumálum.

Uppfinningamaðurinn lifði þó alla tíð við kröpp kjör. ,,Það er einmitt svona kannski sorglegast í þessu að hann var svo gáfaður og sniðugur en fékk ekki að njóta þess," segir Halldór.

,,Mér fannst eiginlega bara magnað að á millistríðsárunum hafi verið maður hérna á Íslandi sem um tíma bjó ekki einu sinni í húsi, hann bjó í skipsflaki, að hann hafi verið að reyna að búa til ný hljóðfæri. Mér finnst það eiginlega bara fáránlegt en ótrúlega fallegt á sama tíma."

Tónlistarmaðurinn Halldór Eldjárn smíðaði nýverið rafpípuorgel og rafhörpu. Innblásturinn að hörpusmíðinni kom frá Magnúsi K. Guðnasyni, uppfinningamanni sem fæddist á 19. öld og lét sig margt fleira en tónlist varða.

Halla Harðardóttir tók Halldór Eldjárn tali í Víðsjá. Þau ræddu um hljóðfæri sem Halldór hefur smíðað og uppfinningamanninn Magnús Karvel Guðmundsson svo fátt eitt sé nefnt. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

16.10.2026 14:00


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000888
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.