RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Ætla að verða fyrstir til að senda könnunargeimfar að Mars og til baka

Ef allt fer samkvæmt áætlun verður leiðangur Japönsku geimvísindastofnunarinnar JAXA sá fyrsti sem farinn verður fram og til baka en ferðir til Mars hafa hingað til einungis verið í aðra áttina.

Markmið leiðangursins er að safna sýnum sem gætu varpað ljósi á uppruna sólkerfisins.

Könnunarfarinu verður skotið frá Tanegashima-geimvísindastöðinni á þriðjudag klukkan 04:41 að staðartíma, eða 19:41 að íslenskum tíma. Könnunarfarið nálgast Mars ári seinna þar sem það mun vera á sporbaug um tunglið Phobos í allt að þrjú ár áður en það lendir á yfirborði þess.

Krílríkur krafsar í tunglið

Þar mun könnunarjeppinn IDEFIX framkvæma yfirborðsrannsóknir og safna sýnum, en Idéfix er franska nafnið á Krílríki, hundi Steinríks alvaska í Ástríksbókunum.

Vísindamenn JAXA segja enn fremur að leiðangurinn verði nýttur til að kanna möguleikann á að nota Phobos sem eins konar náttúrulega geimstöð þar sem tunglið er utan þyngdarafls Mars.

Kínverskar og bandarískar geimvísindastofnanir hafa keppst um að vera þær fyrstu til að snúa aftur með jarðvegssýni frá Mars.

Könnunarjeppi NASA, Perseverance, hefur ekið um rauðu plánetuna síðan árið 2021 og safnað sýnum en ríkisstjórn Donalds Trump stöðvaði verkefnið og hefur NASA ekki getað komið þeim heim.

18.10.2026 16:24


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000891
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.