RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Norska HM-tromman seldist á 16,7 milljónir á uppboði

Tromman sem ferðaðist með norska karlalandsliðinu í fótbolta á heimsmeistarakeppnina í fótbolta í ár hefur verið seld fyrir metupphæð. Frá þessu greinir norska ríkisútvarpið. Tromman er árituð af öllum norsku landsliðsmönnunum.

Tromman var boðin upp í sjónvarpssöfnuninni TV-aksjonen á NRK þar sem fé var safnað til styrktar Flóttamannahjálp Noregs.

Eftir 277 boð frá 32 áhugasömum kaupendum var tromman seld á 1,3 milljónir norskra króna, en það jafngildir 16,7 milljónum íslenskra króna. Nafn kaupandans hefur ekki verið gefið upp.

Reru í stað þess að ,,húa"

Norska karlalandsliðið náði besta árangri á HM í sögu liðsins með því að komast alla leið í átta liða úrslit eftir frækilegan sigur á Brasilíu. Þeir voru þó á endanum slegnir út af Englandi í uppbótartíma.

Norsku stuðningsmennirnir unnu engu að síður hug og hjörtu fótboltaaðdáenda víða um heim með einkennandi fögnuði sem þótti minna á íslenska víkingaklappið, en þó með nýjum brag. Í stað þess að klappa og húa, reru þeir ímynduðum bátum og hrópuðu ,,Ro!"

Tromman gegndi lykilhlutverki við að slá taktinn fyrir ,,víkingaróðurinn" svonefnda og börðu ekki ómerkilegri menn á trumbuna en fótboltastjarnan Erling Braut Haaland og Hákon Noregskonungur.

HM-tromman þykir með öðrum orðum afar mikilvægur hluti norskrar íþróttasögu en nú er hún vísast komin í einkaeigu einlægs aðdáanda.

19.10.2026 01:22


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000891
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.