|
|
 |
|
| |
Hætt við tímabundið hverfi fyrir farandverkamenn Ekkert verður af því að komið verði upp húsnæði fyrir tímabundna búsetu við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg. Hugmyndin var að þar gæti farandverkafólk búið í öruggu húsnæði. Meirihlutinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur ákveðið að falla frá þessum áformum. Það gerir hann meðal annars vegna þeirrar óánægju sem hefur komið fram meðal íbúa. Hátt í 300 mættu á íbúafund um fyrirhugaða uppbyggingu. Margir létu í ljós óánægju sína. Greint er frá örlögum verkefnisins á vef Hafnarfjarðarbæjar. Þar er haft eftir Orra Björnssyni, formanni bæjarráðs Hafnarfjarðar, að meirihlutinn hafi talið þetta áhugaverða hugmynd til að mæta raunverulegri þörf á húsnæðismarkaði. Að höfðu samráði við íbúa og eftir að hafa yfirfarið forsendur verkefnisins hafi meirihlutinn talið rétt að falla frá áformunum.
19.10.2026 10:24
<< Til baka
|
|
| |
|
| |
Gestir alls
     
Talið frá 06.09.2026 |
| |
|
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af
gamalt.net
veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.
|
| |
|
 |