RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Segir afléttingu viðskiptaþvingana gegn Rússlandi lið í friðarumleitun

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur varið þá ákvörðun sína að draga úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi.

Í færslu á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, segist Trump vera að semja um frið í stríðinu milli Rússlands og Úkraínu og þá dugi ekki að hrekja Rússa frá samningaborðinu. Þá segir Trump að Rússland veiti Íran minni aðstoð en áður og að hann vilji að svo sé áfram.

Á föstudaginn skrifaði Trump undir forsetatilskipun sem setti viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna gegn Rússlandi á ís. Þvinganirnar beindust einna helst gegn orku- og varnarmálageirum landsins, Vladímír Pútín Rússlandsforseta og öðrum háttsettum embættismönnum, sem og gegn skuggaflota Rússlands.

Í sömu færslu ítrekaði Trump ásakanir sínar á hendur Volodymyr Zelensky forseta Úkraínu þar sem hann segir forsetann ekki vilja frið. Hann hafi fengið háar fjárhæðir frá Evrópu og frá Joe Biden, forvera Trumps í starfi, en samt sé Úkraína í rúst, stór landsvæði töpuð og karlmenn landsins upp til hópa látnir eða særðir.

Þá lætur Trump í veðri vaka að Zelensky sé sama þótt aðgerðir hans hafi neikvæð áhrif á heimsmarkaðinn með árásum sínum á olíuhreinsunarstöðvar Rússlands en hins vegar sé Vladímír Pútín Rússlandsforseti tilbúinn til að senda heiminum milljónir olíutunna á lágu verði.

Eftir yfirlýsingar Trumps sagði Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu að hann væri tilbúinn til að vinna að friði á uppbyggilegan og heiðarlegan hátt.

19.10.2026 00:16


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000891
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.