Ein vinsælasta gamanmynd íslenskrar kvikmyndasögu, Stella í orlofi, verður sviðsett á stóra sviði Borgarleikhússins á næsta leikári, í leikstjórn Brynhildar Guðjónsdóttur.
Brynhildur annast einnig leikgerð sýningarinnar ásamt Halldóri Laxness Halldórssyni. Sýningin verður byggð á samnefndu kvikmyndahandriti Guðnýjar Halldórsdóttur, móður Halldórs, með tónlist eftir Valgeir Guðjónsson.
40 ár eru síðan Stella í orlofi var frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum, 18. október 1986. Stór hluti þjóðarinnar sá myndina í bíó á sínum tíma en vinsældir hennar eru ekki síst tilkomnar vegna þess að henni var á tímabili dreift með pylsupökkum.
Edda Björgvinsdóttir fór eftirminnilega með hlutverk Stellu Löve, lífsglöðu húsmóðurinnar sem tekur til sinna ráða þegar Georg, eiginmaður hennar, lendir á spítala og kemst ekki í veiðiferð sem stóð til með erlendum viðskiptavini.
Stella ákveður að fara í stað Georgs og hefst þá óborganleg atburðarás sem öll er byggð á misskilningi. Við sögu kemur danskt viðhald Georgs, Lionsklúbburinn Kiddi, drykkfelldi Svíinn Salomon, flugmenn á frívakt, fljúgandi grill og jeppadekk.
Auk Eddu fóru þeir Gestur Einar Jónsson og Þórhalldur Sigurðsson, Laddi, á kostum sem Georg og Salomon. Á næstu vikum verður greint frá því hver fara með aðalhlutverkin í Borgarleikhúsinu.
,,Stella í orlofi er fullkomin blanda af galsa og trega, sameign okkar allra og hápunktur tímabils þegar bjór var bannaður og allir drukku sterkt, leiðtogafundur stórvelda var haldinn í Höfða, Hófí var fallegust, Jón Páll var sterkastur, Reynir Pétur labbaði í kringum landið og allir fengu köku í 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar. Og hugsið ykkur, við lifðum þetta af!" er haft eftir Brynhildi Guðjónsdóttur í tilkynningu Borgarleikhússins.
,,Það verður sannarlega áskorun að koma hinu frábæra kvikmyndahandriti Guðnýjar Halldórsdóttur á svið, fanga það besta úr kvikmyndinni sem heillaði þjóðina og kitlaði hláturtaugar svo um munaði - eitursnjöll flétta, frábærlega leikstýrt af Þórhildi Þorleifsdóttur, snilldarlega leikin af óaðfinnanlegu kasti, hver rammi myndrænt listaverk, bilaðslega flott litapalletta og tónlist Valgeirs Guðjónssonar sem fullkomnar verkið."