,,Við þá sem eru einhverjir Stellu-conformistar: Hafið engar áhyggjur. Þetta verður ekki Nútímadanssýningin Stella," segir Halldór Laxness Halldórsson, annar höfundur leikgerðar Stellu í orlofi.
,,Það er spennandi að fá að setjast við handrit móður sinnar og fá að bæta sínu inn."
Greint var frá því í dag að Stella í orlofi verði sett á svið í Borgarleikhúsinu á næsta leikári.
40 ár eru frá því að kvikmyndin ástsæla var frumsýnd. Guðný Halldórsdóttir skrifaði upprunalega handritið og Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrði kvikmyndinni. Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrir sýningunni og annast leikgerð hennar ásamt Halldóri.
Halldór er menntaður leikhúsfræðingur. Hann segir sögu Stellu í orlofi eiga vel við sviðið.
,,Ég held að við séum ekkert að fara að færa þetta í tíma neitt. En það skiptir máli, hvort sem þú ert að setja upp Sjálfstætt fólk eða Stellu í orlofi, að stinga sögunni í samband við tíðarandann og við samfélagið sem er að fara að sjá hana," segir Halldór.
,,Það er kannski stóra verkefnið - hvernig við gerum það. En ég vil kannski ekki gefa of mikið upp um það á þessu stigi málsins."
,,Kannski getum við kallað þetta uppgjör Stellu í orlofi"
,,Það sem gerir Stellu svo sérstaka er að hún hefur alið upp nokkrar kynslóðir einhvern veginn," segir Halldór. Kvikmyndin hafi verið til á hverju einasta heimili eftir að henni var dreift með pulsupökkum.
,,Svo hafa foreldrar sýnt börnunum sínum myndina. Nú er kannski kynslóðin sem var alin upp af Stellu í orlofi orðin fullorðin. Það er þess vegna sem okkur finnst þetta svona spennandi. Kannski getum við kallað þetta uppgjör Stellu í orlofi og þess samfélags sem við sjáum þarna."
Halldór skrifaði líka verkið Atómstöðin - endurlit, ásamt Unu Þorleifsdóttur. Verkið var sett upp í Þjóðleikhúsinu árið 2019 og var bæði aðlögun og eins konar rýni á skáldsögunni frá 1948. Halldór er afkomandi höfunda bæði Atómstöðvarinnar og Stellu í orlofi, afa síns Halldórs Laxness og móður sinnar Guðnýjar Halldórsdóttur.
Hóa í gamla gengið (en samt ekki)
Halldór fer fögrum orðum um Brynhildi Guðjónsdóttur.
,,Hún er mesti meistarinn. Hún er bæði að skrifa með mér, leikstýrir og er komin á fljúgandi fullt með alls konar vinnu í leikmynd og búningum. Svo er verið að nýta tónlist Valgeirs Guðjónssonar sem okkur finnst svo viðeigandi við þetta tímabil."
Valgeir samdi tónlist fyrir kvikmyndina á sínum tíma.
,,Valgeir á svo marga hittara og hann átti stóra lagið í Stellu, sem Diddú syngur. Það er smá verið að hóa í gamla gengið en taka 2026 remix af þessu öllu."