RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Blikar geta orðið Íslandsmeistarar á morgun eftir tap FH

Breiðablik getur orðið Íslandsmeistari í fótbolta á morgun eftir að FH tapaði 0-4 gegn Þrótti. Liðin mættust í hellidembu í Kaplakrika í dag. FH þurfti sigur til að knýja fram úrslitaleik gegn Breiðablik næsta föstudag.

Nú er Breiðablik með þriggja stiga forskot þegar liðið á tvo leiki til stefnu. Kópavogskonum dugar stig gegn Stjörnunni en liðin mætast klukkan 17:00 á morgun.

Leikið verður á Stjörnuvelli.

Gangur leiksins

Sæunn Björnsdóttir kom Þrótti yfir með vítaspyrnu sem FH-ingar voru afar ósáttir við. Markið kom á 19. mínútu. Sierra Marie Lelii tvöfaldaði svo forskotið á 36. mínútu. Staðan var því 0-2 í hálfleik.

FH-ingar komu mun ákveðnari út í seinni hálfleik en náðu ekki að minnka muninn. Bríet Fjóla Bjarnadóttir skoraði þriðja mark Þróttara á 90. mínútu með skoti fyrir utan teig.

Kayla Marie Rollins slapp svo ein í gegn og skoraði fjórða markið á þriðju mínútu uppbótartímans.

Fáum við ekki úrslitaleikinn?

Breiðablik var fyrir daginn með þriggja stiga forskot þegar tvær umferðir eru eftir. FH og Breiðablik hafa verið að berjast um toppsætið allt mótið. Hlutlausir fótboltaáhugamenn voru orðnir spenntir fyrir hreinum úrslitaleik á föstudagskvöldið kemur. Síðasta tímabil fengum við úrslitaleik milli Vals og Breiðabliks árið 2024, en fyrirkomulagið með úrslitakeppni efri og neðri hluta býður upp á þetta

FH varð síðast Íslandsmeistari árið 1977 og varð það þá fjórða árið í röð sem liðið vann titilinn. Blikar hafa orðið Íslandsmeistarar oftast allra, 20 sinnum og síðast fyrir ári

Breiðablik er vant því að vera í toppbaráttunni en lið FH hefur tekið stöðug skref fram á við síðustu ár.

Ef Breiðablik tapar á morgun fáum við hreinan úrslitaleik um titilinn á föstudaginn. Leikið verður á Kópavogsvelli. Ljóst er að FH þarf sigur en auk þess að vera með þremur stigum færri en Blikar þá eru Blikar með +30 í markatölu og FH nú +25.

Athyglisverður leiktími

Leikurinn hófst klukkan 11:00 í morgun en honum var flýtt vegna veðurs. FH-ingar hvöttu bæði kirkjuna og eigendur skemmtistaða til að vinna með sér. Þeir vildu að kirkjan sýndi skilning á því að fólk myndi sleppa guðsþjónustu þennan sunnudag og að öldurhús Hafnarfjarðarbæjar myndu loka fyrr í gærnótt.

18.10.2026 12:58


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000887
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.