Varkár eftir Margréti Bjarnadóttur hefur vakið mikla athygli frá því að hún kom út fyrir skemmstu. Þetta er persónulegt verk sem fjallar um þrána eftir að eignast barn. Ingibjörg Iða Auðunardóttir, einn af gagnrýnendum Kiljunnar, segir að lesendum sé hleypt alveg inn að kviku söguhöfundar.
Hún segir að ekki séu allir hrifnir af hve mikið hefur farið fyrir skáldævisagnalegum skrifum (e. autofiction) á síðustu misserum og að hún geti sumpart tekið undir það þegar illa er að verki staðið.
,,En þegar þetta er svona vel gert þá er full ástæða til að fagna þessari list rithöfunda að leyfa okkur að sjá inn í þau, bókstaflega. Þetta er fyrir forvitið fólk, fyrir fólk sem vill vita hvernig það er að vera í þessum aðstæðum. Þetta er mögnuð lesning. Ég hef rætt þessa bók við marga í kringum mig og við erum öll sammála um það, nú er ég ekki að telja Kollu með, en okkur líður eins og við höfum lent í þessu sjálfar," segir Ingibjörg.
,,Ég veit ekki hversu oft ég hágrét yfir lestri þessarar bókar og ég hef ekki grátið yfir lestri Kilju-bókar áður. Mér fannst þetta brilljant bók."
Eins og að stelast í dagbók
Kolbrún Bergþórsdóttir segir einlægnina í bókinni gera það að verkum að hún hittir mann í hjartastað. Henni hafi liðið eins og hún væri að stelast til að lesa dagbók.
,,Og varðandi grát þá bara skora ég á hvern einasta lesanda að lesa þetta og koma að lokakaflanum og fella ekki tár. Hann er algjörlega magnaður," segir Kolbrún.
Gagnrýnendur Kiljunnar segja bókina Varkár eftir Margréti Bjarnadóttur hitta lesendur í hjartastað og að söguhöfundur hleypi lesendum alveg inn að kviku.
Gagnrýnendur Kiljunnar fjölluðu um bókina Varkár fólk eftir Margréti Bjarnadóttur í síðasta þætti. Hægt er að horfa á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan.