Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í vikunni, en hyggst sitja áfram á þingi sem þingmaður utan þingflokks. Hann sagði ástæðu úrsagnarinnar bæði pólitíska og skipulagslega - innan þingflokks Viðreisnar væri viðvarandi forystuleysi, ákvarðanafælni og klíkumyndun.
Þá vísaði hann einnig til ágreinings um forgangsröðun og sagðist hafa viljað sjá frekari áherslu á málefni barna í flóknum vanda.
Jón segir að hann hafi að undanförnu átt í samtölum við flokksmenn Viðreisnar. Hann viti ekki til þess að einhverjir þeirra séu að íhuga stöðu sína innan flokksins.
,,En það kæmi mér ekki á óvart ef svo væri. En ég er ekki alveg upplýstur um það á þessari stundu," segir Jón.
Sjálfur hafi hann ekki íhugað að skipta um stjórnmálaflokk.
,,En ég er genginn úr þessum þingflokki og ég ætla ekki að æra óstöðugan meira en orðið er."
Gæti breytt afstöðu sinni í ljósi nýrra upplýsinga
Jón gerði skriflegt samkomulag um samstarf og stuðning við ríkisstjórnina og heldur áfram að sinna nefndarstörfum fyrir Viðreisn. Hann segir að það gæti þó breyst.
,,Ég veit ekkert hvernig þessi mál koma til með að þróast en ég gæti alveg hugsanlega breytt afstöðu minni í ljósi nýrra upplýsinga," segir hann.
,,Ég er núna bara að taka einn dag í einu, eða jafnvel hálfan og hálfan dag í einu, og reyna að meta afstöðu þingflokksins og flokksins og talsmanna flokksins til mín."
Það samkomulag sem hann hafi gert um samstarf og stuðning við ríkisstjórnina byggi á virðingu og trausti.
,,Og ef það er ekki til staðar þá er það kannski barnaskapur að halda að maður geti unnið saman."
,,Mér þykir bara mjög miður hver staðan er"
Jón segir að ummæli Gríms Grímssonar, þingmanns Viðreisnar, í Vikulokunum á samtengdum rásum Rásar 1 og Rásar 2 hafi komið illa við sig. Grímur lét þau orð falla í þættinum að lítið hafi gerst í þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir sem Jón fór fyrir.
Jón telur ummælin aðför að sinni persónu og heilindum sem stjórnmálamaður.
,,Grímur hafði samband við mig og bað mig afsökunar á þessu og ég meðtók það. Grímur er toppmaður og ég kann alveg gríðarlega vel við hann og ber mikla virðingu fyrir honum," segir Jón.
Staðan sé dapurleg.
,,Ég ber enga gremju eða reiði til þessara félaga minna. Ekki neitt slíkt. Mér þykir þetta bara mjög miður hver staðan er," segir Jón.
,,Og líka leiðinlegt að vera með upplifun sem aðrir upplifa ekki. Það er sérstakt líka."
Gæti farið svo að þú segir þig úr Viðreisn og verðir óháður þingmaður?
,,Ég sé ekkert í augnablikinu sem gæti orðið til þess. En ég get ekkert útilokað það."