RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Þurftu að fella gamla hlöðu vegna fokhættu

Gular viðvaranir vegna suðvestan hvassviðris eru í gildi í nær öllum landshlutum. Björgunarsveitir á Ölfussvæðinu hafa sinnt þó nokkrum útköllum vegna yfirvofandi þaktjóns í dag.

Sinna þurfti ýmsum verkum en björgunarsveitum bárust meðal annars tilkynningar um fjúkandi eða lausar þakplötur. Á Eyrarbakka þurfti að festa þakplötur á hesthúsi niður, sem og þakplötu á nýlegu íbúðarhúsi. Einn sem hringdi á neyðarlínuna lá sjálfur á þakplötu sem hafði losnað til þess að forða því að hún ylli tjóni.

Á bænum Litla-Saurbæ var vörubíll með krana fenginn til þess að styðja við og fergja þak á gamalli hlöðu sem var við það að fjúka. Fljótlega kom í ljós að byggingin stæði ekki uppi mikið lengur og var þá tekin ákvörðun með ábúanda að fella húsið.

Að loknum aðgerðum óku björgunarsveitir um byggðarlögin til eftirlits áður en þær héldu aftur í bækistöðvar sínar.

Gular veðurviðvaranir er í gildi í nær öllum landshlutum. Björgunarsveitir á Ölfussvæðinu hafa sinnt þó nokkrum veðurtengdum útköllum í dag.

18.10.2026 21:01


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000891
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.