RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
,,Síðan tók lögregla upp á því að henda táragasi á fjöldann"

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, tók þátt í mótmælum í borginni Angers í vesturhluta Frakklands í gær. Mótmæli hafa farið fram víðs vegar um landið síðustu daga og segir innanríkisráðherra Frakklands að alls hafi um 1.800 verið handteknir í gær.

Rósa Björk segir mikla spennu hafa verið í loftinu í Angers í gær.

,,Þar voru mótmæli eins og víða um allt Frakkland. Yfirvöld telja að um 550 þúsund manns hafi mótmælt en skipuleggjendur mótmælanna telja að um 800 þúsund manns hafi farið út á götur um allt Frakkland," segir hún.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vinstri grænna segir mikla spennu hafa verið í borginni Angers þegar hún tók þátt í mótmælum þar í gær. Brotist hafi verið inn í hluta ráðhúss borgarinnar og beitti lögregla táragasi.

Lögregla beitti hópinn táragasi

Mótmælin snúast að mestu um háan framfærslukostnað. Mótmælin hófust í byrjun mánaðar þegar framhaldsskólanemar kröfðust betri aðbúnaðar í skólum.

,,Meirihlutinn af þeim sem voru að mótmæla voru námsmenn," segir Rósa. Hún segir námsmenn einnig mótmæla háu leiguverði og þröngum kosti á stúdentagörðum.

,,En svo hafa þeir líka verið að mótmæla þjóðarmorðinu á Gaza, aðgerðaleysi gagnvart loftslagsbreytingum og uppgangi öfgahægrisins," segir hún. Hins vegar hafi verið boðað til almennra mótmæla í gær. Því hafi stór hluti af öðru fólki sem mótmælti háu verðlagi bæst í hópinn.

,,Ég gekk með mótmælunum yfir daginn og þetta virkaði svona friðsamlegt en mikil spenna í loftinu, maður fann verulega fyrir því," segir Rósa.

,,Síðan tók lögregla upp á því að henda táragasi á fjöldann á mannfjöldann og mér sýndist það nú ekki hafa verið ástæða fyrir því, mér fannst það vera harkalegt af hálfu lögreglunnar og við fundum meira að segja fyrir því, ég og fólkið í kringum mig, fundum fyrir þessu táragasi og það sveið í augun," segir hún

Brotist inn í hluta ráðhússins

Meðal mótmælenda hafi þó leynst skemmdarvargar.

,,Ég varð vitni að því að það var verið að brjóta strætóskýli og sömuleiðis brotist inn í hluta ráðhússins hér í Angers, en það var nú bara mjög fámennur hópur og restin af þeim sem voru að ganga kom ekki nærri því.

Rósa segir að hún hafi einnig heyrt í vinum sem staddir voru í París. Mikil læti hafi verið sérstaklega í tíunda og ellefta hverfi borgarinnar og í kringum Place de la Republique.

,,Þar voru gluggar brotnir, fyrirtæki fengu að finna fyrir því að það var verið að skemma bæði glugga og rúður og ráðist inn í litla veitingastaði, mikið, ég verið að brenna strætóskýli og svoleiðis, þannig að þetta náttúrulega setur svartan blett á mótmæli stúdenta sem almennt séð almenningur í Frakklandi hefur staðið með," segir Rósa.

18.10.2026 14:17


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000891
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.