RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Arsenal unnu seiglusigur á velli sem þeir hafa verið í erfiðleikum með

Arsenal vann 0-1 sigur gegn Nottingham Forest í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta rétt í þessu. Þar með heldur Arsenal pressu á Manchester City sem er enn með þriggja stiga forskot á Skytturnar í efsta sætinu.

City er með 21 stig að sjö leikjum loknum og hefur unnið alla leiki sína. Arsenal er með 18 stig í öðru sæti.

Foest er í 18. sæti með fimm stig og hefur átt erfitt uppdráttar í upphafi tímabils undir stjórn nýja þjálfarans Oliver Glasner.

Noni kom til bjargar

Noni Madueke skoraði eina mark leiksins. Hann kom inn á í hálfleik. Madueke keyrði á Daniel Munoz, tók nokkur skæri og tók svo snertingu inn að marki. Skot hans fór í brasilíska landsliðsmanninn Jair Cunha og þaðan í netið. Matz Sels í marki Forest var strandaður eftir að boltinn fór í Cunha.

Leikurinn var afar lokaður. Eftir 70 mínútur hafði Arsenal ekki náð skoti á markrammann. Er það í fyrsta sinn frá október 2023 sem liðið nær ekki einu skoti á markið á fyrstu 70 mínútum leiksins.

Erfiður völlur

Arsenal hefur átt erfitt uppdráttar á vellinum. Síðustu tveir leikir á City Ground hafa endað með markalausu jafntefli. Liðið vann síðast þar 1-2 sigur 30. janúar 2024. Það er eini sigur Arsenal í síðustu sex tilraunum.

Þar á undan hafði Arsenal tapað þremur leikjum í röð.

18.10.2026 17:31


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000887
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.