RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Óeinkennisklæddir lögreglumenn með grímur tóku 13 ára stúlku höndum

Óeinkennisklæddir lögreglumenn ruddust inn í hús á Suðurnesjum og tóku 13 ára stúlku höndum í apríl 2025. Aðgerðin sneri að leigjanda sem bjó í sama húsi en var ótengdur stúlkunni. Nefnd um eftirlit með lögreglu gerir athugasemdir við framgöngu lögreglu.

Stúlkan var ein heima þegar bankað var harkalega á rúðu á neðri hæð hússins. Þegar hún opnaði dyrnar blöstu við þrír óeinkennisklæddir menn með grímur fyrir vitunum. Stúlkan varð að vonum hrædd og hljóp inn í húsið. Einn mannanna hljóp á eftir henni, greip í hendur hennar þar sem hún reyndi að hlaupa upp stigann og hélt þeim fyrir aftan bak.

Stúlkan grét og öskraði á móður sína þar til lögreglukona kom að og sagði henni að þau væru á vegum lögreglunnar. Hún var í haldi lögreglunnar í um 15 mínútur.

Lögregluaðgerðin snerist um rannsókn á fíkniefnainnflutningi en brotamaðurinn var leigjandi í húsinu og tengdist stúlkunni því ekki. Eftir því sem lögreglan segir þá vissu þeir ekki að í húsinu væri önnur íbúð sem er leigð út.

Héldu ranglega fram að stúlkan hefði hringt í móður sína

Móðir stúlkunnar kvartaði til Nefndar um eftirlit með lögreglu, sem tók málið fyrir öðru sinni í haust eftir að ný gögn bárust sem studdu málflutning mæðgnanna. Þær höfðu meðal annars kvartað undan því að stúlkan hefði ekki fengið að hafa samband við móður sína.

Gögn úr síma hennar staðfestu að móðirin hefði reynt að hringja í dóttur sína á þessum tíma en ekki verið svarað.

Í fyrra skiptið sem málið var tekið fyrir af nefndinni hélt lögreglan á Suðurnesjum því ranglega fram að stúlkan hefði fengið að hringja í móður sína. Gögn úr síma móðurinnar sýna aftur á móti að ekkert slíkt símtal átti sér stað.

Lögreglan segir að þessu hafi verið haldið fram fyrir mistök. Lögregla hafi talið skjáskot af síma stúlkunnar, sem sýndi ósvarað símtal, vera skjáskot af síma móður hennar. Lögreglan segist hafa talið að skjáskotið væri sönnun þess að stúlkan hefði fengið að hringja í móður sína, þegar skjáskotið sannaði hið gagnstæða, það er að móðirin gat ekki náð í dóttur sína.

Hafði djúpstæð áhrif á stúlkuna

Í ákvörðun nefndarinnar segir að þrátt fyrir að atburðarásin hafi haft djúpstæð áhrif á stúlkuna sé ekki beinlínis um ámælisverða háttsemi lögreglu að ræða. Aftur á móti sé tilefni til að læra af þessu máli.

Nefndin beinir þeim tilmælum til embættisins að hagsmunir barna séu sérstaklega hafðir í huga við lögregluaðgerðir og að óeinkennisklæddir lögreglumenn, sem beiti þvingunaraðgerðum, geri grein fyrir sér, sér í lagi þegar börn eða ungmenni eiga í hlut.

18.10.2026 17:46


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000891
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.