RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Áttunda ebólusmitið greindist í Kenía

Ebólusmita hefur orðið vart í Kenýa en í gær greindist áttunda tilfellið samkvæmt upplýsingum þýska fréttamiðilsins Deutsche Welle.

Talið er að maðurinn hafi komist í tæri við fyrsta sjúklinginn sem greindist með ebólu í landinu. Sá var kenískur ríkisborgari búsettur í Kongó þar sem faraldurinn hefur verið hvað skæðastur. Hann lést fimmta október.

Fleiri sjúklingar með möguleg einkenni hafa verið settir í sóttkví á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr sýnatöku.

Skæðasti ebólufaraldur í Kongó

Heilbrigðisyfirvöld í Kongó segja ebólufaraldurinn hafa breiðst enn frekar út í landinu og nú nái hann til átta héraða.

Um miðjan maí á þessu ári var því lýst yfir að tilfellin væru orðin að faraldri og nú er hann sagður orðinn sá skæðasti sem sést hefur í Kongó.

Frá því í maí hafa 9.400 tilfelli greinst, þar af eru skráð dauðsföll orðin 4.500.

Ebóla er ein banvænasta veira sem þekkist en það afbrigði hennar sem smitast nú manna á milli er sjaldgæft. Ekkert viðurkennt bóluefni er til og því er afar erfitt að ná tökum á faraldrinum.

19.10.2026 07:13


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000891
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.