RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Vésteinn sneri aftur fyrir efnilegan Selfyssing: ,,Vil ekki setja of mikla pressu"

Vésteinn Hafsteinsson hefur ákveđiđ ađ snúa aftur í ţjálfun til ađ ađstođa kringlukastarann Hjálmar Vilhelm Rúnarsson.

Eftir farsćlan feril sem kastţjálfari ţar sem hann ţjálfađi međal annars tvo Ólympíumeistara í kringlukasti hćtti Vésteinn ađ ţjálfa 2023. Hann ákvađ ađ byrja aftur í sumar ţegar hann sá efnilegan íslenskan kringlukastara frá heimabć sínum Selfossi.

Vésteinn, sem býr í Svíţjóđ, var hér á landi í vikunni ađ ţjálfa Hjálmar.

,,Ég ákvađ ađ gera ţetta og neita mörgum öđrum í stađinn. Bara út af ţví ađ strákurinn er frá Selfossi," sagđi Vésteinn.Vésteinn Hafsteinsson var einn fremsti kringlukastsţjálfari heims. Hann hćtti ađ ţjálfa 2023 en er snúinn aftur til ađ ađstođa hinn unga og efnilega Selfyssing Hjálmar Vilhelm Rúnarsson.

Draumur margra

Vésteinn er Selfyssingur og rann blóđiđ til skyldunnar. Hann hleypur ekki til og ađstođar hvern sem er en telur Hjálmar mikiđ efni. Hann vill ekki setja of mikla pressu á hann.

,,Ég sá hann í sumar og ákvađ bara ađeins ađ forvitnast um hans hćfileika," sagđi Vésteinn. ,,Af ţví ađ strákurinn er frá Selfossi og Íslendingur. Ţá er bara hjartađ hér. Ţá fannst mér dálítiđ áhugavert hvađ hann kastađi á Meistaramóti Íslands."

,,Ţetta er bara frábćrt. Ţađ er geggjađ ađ fá Véstein sem ţjálfara. Ţađ er draumur margra," sagđi Hjálmar.

,,Ég er ekkert ađ segja ađ hann muni fara alla leiđ í ţessu. Ég vil ekkert vera ađ setja ţá pressu á hann núna. En ég er fyrst og fremst ađ opna dyrnar ađ ţeim möguleika," bćtti Vésteinn viđ.

Hvernig verđur ţetta?

Hjálmar hefur bakgrunn í tugţraut en ćtlar ađ helga sig kringlukastinu. Ingvi Karl Jónsson og Rúnar Hjálmarsson ţjálfa hann samhliđa Vésteini. Ingvi og Rúnar stýra ćfingum í höllinni á Selfossi en Vésteinn ađstođar í gegnum fjarfundabúnađ.

Ţá fer Hjálmar í ćfingaferđir til Svíţjóđar til ađ vera undir handleiđslu Vésteins.

Hjálmar er einungis 18 ára og nćstu ár fara í ađ byggja upp tćknina hjá honum. Kringlukastarar ná yfirleitt hátindinum 26-32 ára.

Hversu langt kastar Hjálmar?

Hjálmar varđ í öđru sćti á Meistaramóti Íslands í sumar međ kast upp á 45,56 metra.

Til samanburđar kastađi Guđni Valur Guđnason, fremsti kringlukastari landsins, 60,63 metra á Meistaramótinu. Hans besta kast, 69,35 metrar, er frá árinu 2000.

Hverjir eru Ólympíumeistararnir hans Vésteins?

Vésteinn ţjálfađi Eistann Gerd Kanter sem fékk gull á Ólympíuleikunum í Peking í Kína 2008.

Svíinn Daniel Stĺhl varđ einnig Ólympíumeistari undir handleiđslu Vésteins á Ólympíuleikunum í Tókýó í Japan 2020. Vésteinn ţjálfađi einnig Simon Pettersson sem fékk silfur á sömu leikum.

19.10.2026 06:00


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000887
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.