|
|
 |
|
| |
16 kínversk skip rekin frá Taívan 16 kínversk skip sáust í sameiginlegum ađgerđum undan ströndum Taívan í morgun. Strandgćslan ţar segir ţetta óvenju mikiđ og skipin hafi veriđ hrakin á brott. Kínversku skipin komu víđa ađ. Sum voru frá strandgćslunni, önnur voru rannsóknarskip og svo voru ţar líka venjulega fiskiskip. Strandgćslan í Taívan segir skipin hafa stundađ samhćfđar ađgerđir viđ ađaleyju landsins og Pratas, eyju í suđvesturhluta landsins, sem međal annars hafi faliđ í sér fjölţátta árásir. Hluti skipanna var í efnahagslögsögu Taívan. Strandgćslan hafi gripiđ til harđra ađgerđa til ađ afstýra hćttu af völdum ţeirra. Kínversk stjórnvöld telja Taívan hluta af sínu landi og hafa reglulega hótađ ađ hernema eyríkiđ. Ţau hafa aukiđ umsvif sín í hafinu í kringum landiđ og fjölgađ skipum sem eru ţar međ nánast fasta viđveru. Strandgćslan í Taívan beitti í byrjun mánađarins vatnssprautum á kínverskan skemmtibát, sem vakti hörđ viđbrögđ af hálfu Kínverja. Strandgćslan í Taívan segir í yfirlýsingu ađ Kínverjar séu ađ reyna ađ tryggja sér lögsögu sem ţeir eigi ekki rétt á og ţađ eina sem ţeir hafi upp úr ţví sé aukin óvild af hálfu íbúa Taívan.
18.10.2026 15:43
<< Til baka
|
|
| |
|
| |
Gestir alls
     
Talið frá 06.09.2026 |
| |
|
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af
gamalt.net
veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.
|
| |
|
 |