Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkti fyrr í þessum mánuði að spara í rekstri bæjarins vegna slakrar afkomu á fyrri hluta árs. Meðal annars var samþykkt að lækka laun bæjarfulltrúa og bæjarstjóra. Einnig á að rýna rekstur og endurskoða opnunartíma einstakra stofnana, svo sem bókasafns og sundlaugar.
Morgunblaðið greinir frá þessu í dag og ræðir við Þór Sigurgeirsson bæjarstjóra. Laun hans lækka um 200 þúsund krónur á mánuði. Hann var með 2,085 milljónir í mánaðarlaun samkvæmt yfirliti RÚV um laun bæjarstjóra. Haft er eftir Þór að verðbólga hafi valdið bænum vandræðum.
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af
gamalt.net
veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.