RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Þórsarar komnir úr fallsæti fyrir lokaumferðina

Þórsarar eru komnir upp úr fallsæti fyrir lokaumferð Bestu deildar karla í fótbolta. Þeir fara upp í 10. sæti og erkifjendur þeirra í KA fara niður í fallsæti, það ellefta. Þór er með 27 stig og KA 26 stig.

Þór vann Stjörnuna 3-1 en skömmu áður hafði KA tapað 1-4 gegn Val.

Þór er með -31 í markatölu og KA með -14. KA er því með 17 marka forskot í markatölubaráttunni.

KA mætir ÍBV heima 24. október og Þór sækir FH heim á sama tíma.

Þórsarar eru því með eins stigs forskot fyrir lokadag fallbaráttunnar. Ljóst er að eitt Akureyrarlið mun fylgja ÍBV niður, sem eru nú þegar fallnir.

Gangur leiksins

Örvar Eggertsson kom Stjörnunni yfir snemma leiks en hann skoraði af stuttu færi eftir aðeins þriggja mínútna leik. Ásbjörn Líndal Arnarsson jafnaði metin úr aukaspyrnu á 11. mínútu.

Sverrir Páll Ingason kom Þórsurum yfir með frábæru skoti fyrir utan teig í samskeytin fjær. Þorri Ingólfsson skoraði svo þriðja markið á 58. mínútu er hann kláraði vel í teignum.

17.10.2026 16:08


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000887
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.