Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að engar viðvaranir hafi borist frá bandamönnum um yfirvofandi eldflauga- og drónaárásir Rússa í nótt. Hann segir þá hafa skotið 16 eldflaugum og yfir 200 drónum í nokkrum bylgjum.
Zelensky og úkraínskir embættismenn hafa síðustu daga gagnrýnt bandarísk stjórnvöld og sagt að þau hafi dregið úr allri upplýsingagjöf um loftárásir. Bandarískir ráðamenn hafa vísað því á bug.
Gögn úr eftirlitskerfum Bandaríkjahers og Starshield-kerfi Elons Musks hafa verið hluti af loftvarnakerfi Úkraínu. Það hefur gert þeim kleift að skjóta niður fjölda dróna og eldflauga.
Zelensky sagði að árásir Rússa í nótt hefðu beinst að orkuinnviðum nærri höfuðborginni Kyiv.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur beint spjótum sínum að Zelensky undanfarið og kennt honum um að ekki hafi komist á friður. Zelensky hefur svarað því til að stjórn hans hafi alltaf verið reiðubúin að ræða frið en Rússar komið í veg fyrir slíkt.