RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Vakan er skrímsli sem ,,hefur ófyrirsjáanleg áhrif á þá sem fyrir henni verða"

Sjónvarpsþættirnir Vaka hafa slegið í gegn í Svíþjóð á árinu. Íslenskum sjónvarpsáhorfendum gefst brátt kostur á að horfa á þættina á RÚV - sá fyrsti fer í loftið annað kvöld.

Vaka er dystópískur vísindatryllir sem segir frá því þegar faraldur banvæns svefnleysis breiðist eins og eldur í sinu um Stokkhólm.

,,Mig hefur alltaf langað að skrifa svona það sem mætti kalla dystópíska sögu með hjarta og fannst spennandi að láta sögur nokkurra persóna tvinna saman heildarmynd af samfélagi sem riðar til falls," segir Brynja Björk Garðarsdóttir, höfundur þáttanna.

Í sjónvarpsþáttunum Vöku breiðist faraldur banvæns svefnleysis eins og eldur í sinu um Stokkhólm. Höfundur þáttanna segir adráttarafl heimsendasagna vera mikið vegna þess að þær séu oft afhjúpandi fyrir samfélagið og mannlegt eðli.

,,Í Vöku hittum við fyrir nokkrar ólíkar persónur sem bregðast við á mismunandi hátt þegar heimurinn fer á hvolf og söguþráðurinn fléttast síðan saman í gegnum öll þessi sjónarhorn. Vakan er síðan gott skrímsli þar sem hún hefur ófyrirsjáanleg áhrif á þá sem fyrir henni verða."

Þættirnir hafa verið sýndir víða um heim síðan í janúar á streymisveitunni Prime Video. Brynja segir þættina hafa fengið góðar viðtökur, náð inn á topp tíu lista á öllum mörkuðum og þeir héldu sig þar í nærri tvo mánuði í Svíþjóð.

,,Eitt af því sem gefur heimsendasögum þetta mikla aðdráttarafl er hvernig þær eru oft svona svolítið afhjúpandi fyrir samfélagið og mannlegt eðli og eins og oft er sagt, þegar allt fer á hliðina þá eiga manneskjur það til að sýna bæði sínar bestu og verstu hliðar og það má svo sannarlega heimfæra upp á söguþráðinn í Vöku," segir Brynja Björk.

17.10.2026 07:01


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000888
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.