RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Alltaf eins, aldrei eins

Arnar Eggert Thoroddsen skrifar:

Það er eins gott að vanda til verka þegar besta hljómsveit í heimi gefur út nýja plötu. Ég gat ekki haldið aftur af tárunum er ég var að lýsa því hvaða merkingu hún hefur fyrir mig í hlaðvarpi einu, já, svo djúpt liggja þræðirnir í þessum líkama og þessari sál. Þannig að undirbúið ykkur fyrir rennireið.

Platan hefst á laginu ,,Lygar" og þar er af riffum nóg, ,,hefðbundinn" Ham-massi sem neglir þig upp við vegg. ,,Ég er hann" viðheldur þessu upp að vissu marki, melódískara þó og góður vitnisburður um lagasmíðanáðargáfu Sigurjóns Kjartanssonar. ,,Inni í höfði mér" er hins vegar fullkomlega inni í nokkurs konar alþýðuramma (já, ég sperrti upp eyrun líka, lesandi góður). Kristjana Stefánsdóttir opnar það með glæsisöng áður en farið er í ,,hamferð" þar sem Sigurjón syngur um hrossagauka og að sólin skíni í heiði. En inni í höfðinu deyi hann nú samt og Óttarr kemur inn með söng um að í eðli lífsins sé að reyna hvern mann. Ótrúlegt lag en þetta er engin u-beygja samt. Þessi þráður hefur alltaf verið í tónlist Ham, stóreflis niður aldanna sem kallar fram eitthvað fornt og mikilúðlegt. Hér er þetta einfaldlega tosað aðeins meira upp.

Steinunn Eldflaug syngur ,,la la la" í ,,Stubbur" en aftur er skipt í vel smurt rokk á ,,Hellisheiði", vinkill Ham á ,,Born To Be Wild" eiginlega. Tilraunir spretta hins vegar upp á ,,Rashomon" hvar heyra má ,,eðlilega" rödd Óttars og mér heyrist að flestir meðlimir Ham leggi þarna til rödd einnig. Og hér kemur kór, aftur er það ,,la la la" en nú er eins og við séum í stílfærðum færeyskum hringdansi eða á skuggum bundnum miðnæturfundi einhverra aldinna höfðingja. Gotneskt, þungt, epískt, Ham-legt.

Endalok alls er ný hljóðversplata rokkhljómsveitarinnar Ham. Arnar Eggert Thoroddsen rýnir í gripinn sem jafnframt er plata vikunnar á Rás 2.

,,Nótt finngálksins" býr yfir ískrandi nýbylgjugítar á meðan ,,Ég ann" býður upp á blandaðan kór yfir skriðdrekariffum að hætti hússins. Titillagið er næstsíðast, ógurlegur andskoti, og ég heyrði það fyrst á tónleikum sveitarinnar í Reykholti í apríl. Drungalegt lag sem olli hræðsluskoti í magann í kirkjunni en Óttarr beitir hálfgildings nornaöskri fyrir sig undir restina. En svo, til að undirstrika öll þau stíllegu bessaleyfi sem hér eru tekin, er endað á laginu ,,Lystigarðurinn". Kerskið lag, eiginlega dálítið flippað þar sem endað er með nett brjálæðislegu tralli. Orgelleikur Úlfs Eldjárns kemur hér sterkur inn en sannkölluð valmenni lögðu gjörva hönd á plóg við plötugerðina en það var nafni minn Guðjónsson sem stýrði upptökum sem fram fóru í Sýrlandi og Langholtskirkju í sumar.

Ham sneri aftur 2011 með plötunni Svik, harmur og dauði, hvar haldið var í einkennandi hljóm um leið og snúið var upp á hann. Verkið níðþungt alveg, ég sekk bara niður í sætið þegar ég hugsa um það. Á Söngvar um helvíti mannanna losuðu menn um og draumur Ham um að vera nýbylgjuhljómsveit fékk meðal annars vængi (og tralli skotið inn í ,,Morðingjar").

Endalok alls er verk sveitar sem, þrátt fyrir gríðarlega sterk höfundareinkenni alla tíð, neitar að láta tjóðra sig við eitthvað eitt. Ham er alltaf eins, aldrei eins. Reynsla og innsæi þeirra eldri, hinna spöku, tryggir líka ákveðið afdráttarleysi varðandi það að gera nákvæmlega það sem mönnum hugkvæmist. Að leika sér með formið, þenja mörkin, vinna áfram með það sem sveitin á nú þegar. Útkoman er ákveðin mýkt (já!), visst zen, kímnigáfa í unnvörpum, einkar heilbrigð forvitni (hvar við græðum) og að sjálfsögðu endalaust af hreinu og tæru rokki og róli. Ég bið ekki um meira frá bestu hljómsveit í heimi.

Stjörnur: 5 / 5

Hvernig virkar stjörnugjöf Rásar 2?

Fimm stjörnur: Klassík. Hér er allt eins og best verður á kosið. Platan setur mark sitt á tónlistarsöguna til framtíðar.Fjórar og hálf stjarna: Lygilega góð en tíminn leiðir í ljós hvort hún telst klassík. Fjórar stjörnur: Framúrskarandi. Hún er áhrifamikil og næstum því hvert einasta lag er frábært. Hlustendur sem eru ekki alltaf hrifnir af þessum flytjanda eða tónlistarstefnu eiga eftir að kunna að meta hana.Þrjár og hálf stjarna: Frábær. Ef þetta er tónlistarstefna að þínu skapi þá hugnast þér þessi plata. Ef þú heldur upp á flytjandann áttu eftir að elska hana.Þrjár stjörnur: Góð. Flytjandinn var samur við sig og það heppnaðist með ágætum.Tvær og hálf stjarna: Meh. Annaðhvort reyndi flytjandinn eitthvað nýtt sem gekk ekki alveg upp eða hann var ekki upp á sitt besta.Tvær stjörnur: Sæmileg. Jafnvel þótt þú sért mikill aðdáandi þarftu talsverða sjálfsblekkingu til að telja þér trú um að þessi sé góð.Ein og hálf stjarna: Láttu þessa eiga sig.Ein stjarna: Léleg. Þú ættir eiginlega að kynna þér hana, þó ekki nema bara til að heyra hversu yfirgengilega slæm hún er.

16.10.2026 16:00


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000888
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.