KR tryggði sér endanlega annað sæti í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Vesturbæingar unnu 2-3 sigur gegn Keflavík suður með sjó í dag.
Keflvíkingar enda í 6. sæti sem nýliðar, en nú er ljóst að þeir geta ekki náð ÍA sem er í 5. sæti.
KR komst yfir snemma leiks er Galdur Guðmundsson skoraði á 8. mínútu. Ástbjörn Þórðarson tvöfaldaði forskotið eftir undirbúning Galdurs á 29. mínútu.
Staðan var 0-2 í hálfleik en heimamenn lögðu ekki árar í bát. Þeir jöfnuðu með tveimur mörkum á skömmum kafla. Stefan Alexander Ljubicic minnkaði muninn á 49. mínútu og Dagur Ingi Valsson jafnaði metin tveimur mínútum síðar.
Gabríel Hrannar Eyjólfsson skoraði sigurmarkið á 89. mínútu eftir undirbúning Arnórs Ingva Traustasonar.
KR er nú með 53 stig í 2. sæti þegar einn leikur er eftir. Fram er í 3. sæti með 46 og mætir ÍA á mánudagskvöld.
Hvað þýðir 2. sætið?
Munurinn á 2. og 3. sæti er að KR situr hjá í eina umferð í Sambandsdeild Evrópu á næsta ári en Fram fer í fyrstu umferð. Vesturbæingar fá hins vegar verðlaunafé fyrir fyrstu umferð.