RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Ísland minnsta mögulega mun frá verðlaunasæti og kærði

Kvennalið Íslands varð í 4. sæti á Evrópumótinu í hópfimleikum. Þetta er í fyrsta sinn í 22 ár sem liðið kemst ekki á verðlaunapall. Ísland var minnsta mögulega mun frá verðlaunasæti og kærði niðurstöðuna, en endaði á að fjarlægjast þriðja sætið.

Spennan var afar mikil fyrir lokaæfinguna og þurfti Ísland 18 stig til að ná gulli og 16,9 stig til að ná bronsi. Aðeins 0,5 munaði á lokaæfingu á þriðja sætinu og því fjórða.

Þjálfarateymið kærði dómgæsluna þar sem talið var að dómararnir hefðu misst af einhverju.

Eftir að dómararnir fóru betur yfir æfinguna var erfiðleikastigið lækkað niður úr 7,5 í 7,4.

Svíþjóð varð í fyrsta sæti, Danmörk í öðru og Stóra-Bretland í þriðja sæti.

Stig Íslands

Trampólín - 17,200Gólf - 17,800Dýna - 16,650

Svona enduðu stigin

Svíþjóð - 54,150 stigDanmörk - 53,000 stigStóra-Bretland - 51,900 stigÍsland - 51,650 stigNoregur - 51,650 stigFinnland - 47,550 stig

Kvennaliðið var með næstbestu einkunnina eftir undanúrslit, aðeins 0,300 stigum á eftir Svíþjóð sem var efst. Liðið er yngra en oft áður og því ljóst að mikilvæg reynsla fékkst á mótinu.

Blandaða liðið einnig í 4. sæti

Blandaða lið Íslands varð einnig í 4. sæti með 52,750 stig.

Svíþjóð tók þar einnig gullið, Stóra-Bretland tók silfur og Danmörk brons.

17.10.2026 14:03


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000887
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.