Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti í gær formlega yfir stuðningi við Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels í aðdraganda þingkosninga í landinu.
,,Bibi Netanjahú hefur verið sterkur, hugrakkur og stórkostlegur gegn hinni miklu mótstöðu, þar á meðal innan Ísraels," sagði Trump í færslu á sínum eigin samfélagsmiðli, Truth Social.
,,Það er slíkur félagi sem Bandaríkin búast við af Ísrael, landi sem við höfum gert svo mikið fyrir." Þá lýsti Trump yfir fullkomnum stuðningi við Netanjahú í komandi kosningum.
Ætla að eyða ,,írönsku ógninni" saman
Netanjahú þakkaði Bandaríkjaforseta fyrir stuðninginn og benti samlöndum sínum á að enn þá væri verk að vinna.
Í nýlegu kynningarmyndbandi sem Likud, flokkur forsætisráðherrans, birti á samfélagsmiðlum segir Netanjahú að saman hafi hann og Trump rústað Íran og að endurkjör muni þýða að þeir geti eytt írönsku ógninni fyrir fullt og allt á næstu tveimur árum, jafnvel fyrr.
Abbas Araghchi utanríkisráðherra Íran svaraði þessum yfirlýsingum með aðvörunum um að Netanjahú væri að etja Bandaríkjunum aftur út í stríð.
Kosningarnar mælikvarði á störf Netanjahús
Kosningarnar verða haldnar 27. október og samkvæmt kosningaspám verður mjótt á mununum. Mótframbjóðandi Netanjahús, Gadi Eisenkot, gerir sig líklegan til að ógna stöðu hans, en Eisenkot er formaður flokksins Yashar, sem er á miðjunni til hægri á hinu pólitíska rófi.
Þetta verða fyrstu kosningarnar í landinu frá árás Hamas-samtakanna 7. október 2023 og því er sérstaklega litið á þær sem mælikvarða á störf Netanjahú og stríðsáætlanir hans.
Hann hefur legið undir ámæli fyrir að bera að hluta til ábyrgð á árás Hamas, en hann hefur verið ásakaður um að hafa haft vitneskju um áform samtakanna sjöunda október, þar á meðal af Eisenkot.
Netanjahú hefur setið í forsætisráðherrastólnum í 19 ár alls, lengst allra forsætisráðherra Ísraels, þó með hléum.